Geta losað sig við allt að milljón spillta embættismenn Atli Ísleifsson skrifar 17. október 2014 15:51 Petro Pórósjenkó Úkraínuforseti. Vísir/AFP
Petro Pórósjenko Úkraínuforseti hefur undirritað lög sem ætlað er að hreinsa til í embættismannakerfi Úkraínu. Með lögunum verður gert mögulegt að reka allt að milljón embættismenn og aðra opinbera starfsmenn sem ráðnir voru meðal annars í stjórnartíð Viktors Janúkóvitsj, forvera Pórósjenkó í starfi. Spilling var landlæg í Úkraínu löngu áður en Janúkóvitsj tók við forsetaembættinu árið 2010, en í frétt NRK kemur fram að flestir séu sammála um að vandamálið hafi aukist í stjórnartíð Janúkóvitsj.Spillingarvísitala alþjóðlegra samtaka gegn spillingu (Transparency International) sýnir að Úkraína mælist í 144. sæti listans, með löndum á borð við Nígeríu og Kamerún. Því neðar sem lönd eru á listanum, því spilltari eru þau. Samkvæmt listanum er Úkraína spilltasta ríki Evrópu, en einungis 28 ríki heims eru neðar á listanum. Úkraínsk stjórnvöld stefna að því að sækja um ESB-aðild innan sex ára og er ljóst að mikið þarf að gera til að landið uppfylli skilyrði þess að fá stöðu umsóknarríkis. Að sögn bæði forsætisráðherra og dómsmálaráðherra landsins getur allt að milljón embættismönnum verið sagt upp samkvæmt lögunum sem tóku gildi í gær. Spilltir embættismenn allt frá Sovéttímanum, gamlir liðsmenn KGB og Kommúnistaflokksins, geta átt von á því að fá reisupassann. „Þessi lög eru tuttugu árum of seint á ferðinni, en betra seint en aldrei,“ segir forsætisráðherrann Arsenij Jatsenjuk.
Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Erlent „Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“ Innlent Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Erlent Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Erlent Ingólfur leysir Baldur af Innlent Laga þurfi fegurðarskynið að orkuskiptum Innlent „Að bilast“ yfir útlensku í almannarými Innlent Fleiri fréttir Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Sjá meira