Leiðtogar mótmælenda í Hong Kong samþykkja að ganga til viðræðna Atli Ísleifsson skrifar 6. október 2014 23:52 Mikið hefur dregið úr krafti mótmælanna síðustu daga. Vísir/AFP
Leiðtogar mótmælenda í Hong Kong hafa samþykkt að taka upp formlegar viðræður við fulltrúa stjórnvalda. Ekki hafa verið gefnar út dagsetningar um hvenær viðræður muni fara fram, en mótmælendur segja það skýrt að ekkert af þeim verði, verði þeir mótmælendur sem eftir eru á götum Hong Kong fluttir á brott með valdi af lögreglu. Fréttaritari BBC í Hong Kong segir að þó að mótmælendum á götum Hong Kong hafi fækkað síðustu daga þá sé enn öflugur hópur sem ekki sé líklegur til að láta deigan síga. Mikið hefur dregið úr krafti mótmælanna, sérstaklega eftir að opinberir starfsmenn sneru aftur til vinnu nú í byrjun vikunnar. Alex Chow, einn leiðtoga mótmælenda, segist þó ekki hafa áhyggjur af fækkun mótmælenda á götum úti. „Fólk verður að hvíla sig, en það mun koma aftur. Þetta þýðir ekki að hreyfingin fari minnkandi. Fjölmargir styðja enn aðgerðirnar,“ segir Chow í samtali við BBC. Mótmælendur krefjast þess að kosningar á þarnæsta ári verði án fyrirhugaðra afskipta kínverska kommúnistaflokksins, en stjórnvöld hafa handtekið og yfirheyrt tugi manna vegna stuðnings við mótmælin síðustu daga. Þykja handtökurnar sýna að kommúnistaflokkurinn óttist að krafan um lýðræðisumbætur breiðist út til borga á meginlandinu en þar sæta fréttir af mótmælunum mikilli ritskoðun.
Mest lesið Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Erlent Kristrún situr fyrir svörum og opnað verður fyrir símann Innlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastala tók á loft Innlent Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Innlent Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Innlent Hnífjafnt í nýrri könnun Innlent Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Innlent Fleiri fréttir Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Sjá meira