Morgunmatur sem er 8000 hitaeiningar Kjartan Atli Kjartansson skrifar 7. október 2014 09:53 Þetta er hinn þokkalegasti skammtur.
Góður morgunmatur getur lagt grunn að góðum degi. Þetta hefur eigandi veitingastaðar í Englandi tekið bókstaflega. Hann býður nú viðskiptavinum sínum upp á morgunmat sem er hvorki meira né minna en átta þúsund hitaeigningar. Veitingastaðurinn kallast Bear Grills Cafe.Þetta er hluti af réttinum. Takið eftir: Hluti, ekki allur rétturinn.Rétturinn er kallaður The Hibernator, og vísar nafnið til þess að eftir að hafa borðað hann geta viðskiptavinirnir lagst í vetrardvala. „Við köllum hann þetta, því þeir sem klára hann geta lagst í dvala í heilt ár,“ segir eigandinn Mark Winder. Hann segir að rétturinn sé um þrjú og hálft kíló að þyngd. „Vegur það sama og ungabarn,“ bætir hann við. Winder biður alla sem leggja sér réttinn til munns að skrifa undir plagg, þar sem fólk vottar að það sé að borða matinn á eigin ábyrgð. „En enginn hefur látist við að borða réttinn," segir hann. Svona er rétturinn uppbyggður: Átta sneiðar af beikoni. Átta pylsur. Fjórir kartöfluklattar. Fjórar vöfflur. Fjórar ristaðar brauðsneiðar. Fjórar sneiðar af grilluðu brauði. Eggjahræra með fjórum eggjum. Baunir, tómatar og sveppir. Stór skammtur af frönskum. Stór mjólkurhristingur. Rétturinn kostar rétt tæp tuttugu pund, sem er um 3900 íslenskar krónur. Þeir sem klára réttinn fá bol að gjöf. Upphaflega þurfti að klára réttinn á innan við hálftíma, en eftir að engum tókst að klára hann ákvað Winder að taka tímamörkin af. Á vefsíðunni EatingChallenges.com kemur fram að þetta er stærsta áskorun á Bretlandseyjum þegar það kemur að morgunmat. Enginn staður býður upp á jafn hitaeiningaríkan morgunverð. Eðlileg hitaeiningaþörf karlmanna er um 2500 og 2000 hitaeingar fyrir konur.
Mest lesið Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Innlent Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Innlent Ofbeldi í garð fangavarða eykst Innlent Dettifoss komið til hafnar Innlent Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Innlent Þinglokasamningur í höfn Innlent „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Innlent Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Innlent Fleiri fréttir Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Sjá meira