Lífið

Annað barn á leiðinni

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Neve og JJ.
Neve og JJ. vísir/getty
Leikkonan Neve Campbell á von á öðru barni með kærasta sínum, leikaranum JJ Feild.

Neve spókaði sig um í Hollywood um helgina og sást glitta í agnarsmáa óléttubumbu eins og sést á mynd á vef tímaritsins Us Weekly.

Neve og JJ eiga fyrir soninn Caspian sem varð tveggja ára í ágúst síðastliðnum.

„Þau hefur alltaf langað í fleiri en eitt barn. Þau vilja að Caspian eignist systkini,“ segir heimildarmaður Us Weekly.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.