Lífið

Ekki hætta að segja: "Ég elska þig“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Viss nánd fer úr samböndum með tímanum, að hluta til vegna þess að pör hætta að segja: „Ég elska þig“ við hvort annað. Þetta kemur fram í nýrri könnun YouGov.

Við gerð könnunarinnar voru 2071 fullorðnir Bretar spurðir um gæði sambands síns. 959 sögðust vera giftir og 494 sögðust vera í sambandi.

Í könnuninni kemur fram að pör tjá sig meira í nýjum samböndum en um fimmtíu prósent þeirra sem tóku þátt, sem höfðu verið í sambandi í tvö til fimm ár, sögðust elska maka sinn á hverjum degi.

Aðeins 33 prósent af þeim pörum sem höfðu verið saman í meira en tíu ár sögðust elska hvort annað á hverjum degi og aðeins átján prósent þeirra sem höfðu verið saman í meira en fimmtíu ár.

Hér fyrir neðan má sjá graf sem sýnir hvernig fólk lýsti samböndum sínum. Útkoman er ansi mismunandi eftir lengd sambandanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.