40 flóttamanna saknað eftir að fleki sökk í Miðjarðarhafi Stefán Ó. Jónsson skrifar 21. september 2014 19:55 Frá björgunarstörfum ítölsku landhelgisgæsunnar. Vísir/AFP
Förutíu flóttamanna er saknað eftir að fleki sem þeir voru á sökk 50 kílómetrum frá austurströnd Líbýu, segir ítalskur landhelgisgæslumaður í samtali við Reuters. Ítölsk hafnaryfirvöld sendu báta til móts við flekana og var 55 flóttamönnum bjargað um borð, en talið er að um 95 hafi verið á fleyinu. Hvorki tangur né tetur hefur fundist af þeim 40 sem saknað er. Alls hafa því rúmlega 3000 flóttamenn látist það sem af er ári við að sigla yfir Miðjarðarhafið í átt að Ítalíu. Flestir þeirra koma frá stríðshrjáðum svæðum í Sýrlandi, Líbýu og Eritreu á austurströnd Afríku. Mörgum hefur þó tekist siglingin og talið er að um 130 þúsund flóttamenn hafi náð ströndum Ítalíu í ár, borið saman við 60 þúsund allt árið í fyrra samkvæmt tölum frá Flóttamannstofnun Sameinuðu þjóðanna. Vargöldin sem nú ríkir í Líbýu hefur leitt til þess að nær ómögulegt er að halda utan um fjölda þeirra sem flúið hafa landið á síðustu misserum. Talið er að menn, sem sérhæfa sig í flutningum flóttamanna frá landinu, rukki um 1000 dali, rúmlega 150 þúsund krónur, fyrir ferðina að ströndum Ítalíu. Ítölsk stjórnvöld hleyptu af stokkunum átakinu „Mare Nostrum“ eða „Sjórinn okkar“ á síðasta ári en það felur í sér víðtækara eftirlit og hjálparstarf í Miðjarðarhafi eftir að 366 manns létust í skipsskaða sem varð undanströndum eyjunnar Lampedusa í fyrra.
Mest lesið Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Stundum koma upp atvik“ Innlent Fleiri fréttir Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Sjá meira