Leitaði að fólki sem heitir Hitler Kjartan Atli Kjartansson skrifar 22. september 2014 11:28
Kvikmyndagerðarmaðurinn Matt Ogens reynir að varpa ljósi á áhrif nafns á sjálfsmynd fólks í sinni nýjustu heimildarmynd, sem ber titilinn Meet the Hitlers. Í henni sýnir hann líf fólks sem ber sama eftirnafn og Adolf Hitler, eitt þekktasta illmenni sögunnar. Í myndinni sýnir hann daglegt líf fólks sem ber þetta aldræmda nafn, eins og sjá má í sýnishorni úr myndinni hér að neðan. Ogens hefur lengi haft í hyggju að gera þessa mynd, en hann þekkti fólk í háskóla sem bar þetta eftirnafn. „Ég fékk jólakort þar sem á stóð „gleðileg jól frá Hitler fjölskylydunni“ og mér þótti eitthvað skrýtið við það. Ég fór að hugsa hvernig það væri að bera þetta nafn. Hvernig áhrif það hefði á manneskju,“ segir hann í samtali við miðilinn Vice. Ogens segir að það hafi verið erfitt að ná í fólk með eftirnafnið, því það sé oft ekki skráð opinberlega, til að forðast áreiti. Hann segir að margir hafi hafnað því að taka þátt í myndinni, sérstaklega í fyrstu. Hann hafi þurft að sannfæra viðmælendur sína að vera með í myndinni. „Margir héldu að þeir yrðu dæmdir. En markmið myndarinnar er einmitt að dæma ekki fólk eftir því hvaða nafn það ber.“ Einn viðmælandinn þótti afar áhugaverður. Það var hinn 83 ára gamli Jean Hitler, sem ákvað að breyta ekki nafninu sínu, því þetta væri fjölskyldunafn sem hefði verið til lengi. „Ein dóttir hans bauð sig fram til forseta nemendafélags og þurfti frá að hverfa vegna þess að hún var áreitt vegna nafnsins.“ Í myndinni er einnig rætt við nýnasista sem skírði son sinn Adolf Hitler. „Sem kvikmyndagerðarmaður sem gerir heimildarmyndir reyni ég að viðhalda hlutleysi mínu. En ég er líka manneskja,“ segir Ogens og bætir við að nafnið muni líklega hafa áhrif á barnið til lífstíðar. Hann segir að maðurinn sé nýnasisti. „Nafn barnsins er yfirlýsing. Þetta snýst um skoðanir mannsins en ekki um barnið.“ Hér að neðan má sjá sýnishorn úr myndinni Meet the Hitlers en hún verður frumsýnd þann 17. október á kvikmyndahátíðinni í New Orleans.
Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Erlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Erlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Erlent Tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar Innlent Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Erlent „Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“ Innlent Ingólfur leysir Baldur af Innlent Fleiri fréttir Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Sjá meira