Ferðakaupstefnan Vest Norden Travel Mart hefst á morgun Stefán Árni Pálsson skrifar 29. september 2014 11:18 Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu. visir/vilhelm
Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu mun setja Vest Norden Travel Mart ferðakaupstefnuna í 29. skiptið á morgun, þriðjudag, í Laugardalshöll. Vestnorden Travel Mart er kaupstefna í ferðaþjónustu sem haldin er á Norður-Atlantshafssvæðinu. Íslandsstofa er framkvæmdaaðili ferðakaupstefnunnar í samstarfi við ferðamálasamstarf Norður-Atlantshafsins, en meginhlutverk þess er að móta sameiginlega stefnu í ferðamálum fyrir svæðið Grænland, Ísland og Færeyjar og styrkja ýmis verkefni sem efla ferðaþjónustu innan þess. Ferðakaupstefnan er haldin annað hvert ár á Íslandi og hin árin til skiptis í Færeyjum eða á Grænlandi. Peter Greenberg, frummælandi ferðakaupstefnunnar, var útnefndur af Travel Weekly árið 2012 sem einn af áhrifamestu mönnum ferðaþjónustunnar ásamt þeim Bill Marriot og Richard Branson. Peter Greenberg er reglulegur gestur í þekktum sjónvarpsþáttum vestanhafs eins og Oprah Winfrey Show og The View. Peter Greenberg sendir út frá Íslandi og mun taka nokkra góða Íslendinga tali fyrir þátt sinn sem síðar verður útvarpað í Bandaríkjunum. Peter Greenberg mun jafnframt sitja fyrir svörum á blaðamannafundi kaupstefnunnar kl. 12:15 þann 30. september ásamt Ingu Hlín Pálsdóttur, forstöðumanni ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu, Ólöfu Ýrr Atladóttur, ferðamálastjóra, Anders Stenbakken, framkvæmdastjóra Visit Greenland og Guðrið Højgaard, framkvæmdastjóra Visit Faroe Islands. Kaupstefnan fær aukið vægi á hverju ári í takt við aukinn fjölda ferðamanna að sögn Ingu Hlínar. „Ísland, Grænland og Færeyjar eru allt áfangastaðir sem búa yfir einstökum tækifærum fyrir ferðamenn. Náttúran, fólkið og menningin eru eiginleikar sem áfangastaðirnir þrír deila að einhverju leyti og við finnum mikinn styrk í því að geta unnið saman á þessum vettvangi að því að kynna löndin saman. Löndin bjóða öll spennandi og fjölbreytta ferðaþjónustu sem fellur vel að þörfum okkar markhópa,“ segir Inga Hlín í tilkynningu sem Íslandsstofa sendir frá sér.
Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Erlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Fleiri fréttir Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Sjá meira