Uppáhaldslið Páfans suður-amerískur meistari í fyrsta sinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. ágúst 2014 08:30 San Lorenzo vann Nacional, samanlagt 2-1, í úrslitaleik Copa Libertadores. Vísir/Getty
San Lorenzo frá Argentínu vann í gær Copa Libertadores í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir sigur á Nacional frá Paragvæ í tveimur leikjum. Copa Libertadores er eins konar Meistaradeild Suður-Ameríku, þar sem bestu lið álfunnar keppa sín á milli. San Lorenzo vann Bolívar frá Bólivíu í undanúrslitunum, samanlagt 5-1, á meðan Nacional hafði betur gegn Defensor Sporting frá Úrúgvæ, samanlagt 2-1. San Lorenzo og Nacional skildu jöfn með einu marki gegn einu í fyrri úrslitaleiknum sem fór fram í Asunción, höfuðborg Paragvæ.Mauro Matus kom argentínska liðinu yfir á 64. mínútu, en Julio Santa Cruz - bróðir Roque Santa Cruz - jafnaði leikinn úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Aðeins eitt mark var skorað í seinni leiknum í Buenos Aires. Það gerði Paragvæinn Néstor Ortigoza úr vítaspyrnu á 36. mínútu eftir að Ramon Coronel, varnarmaður Nacional, hafði handleikið boltann innan vítateigs. Fleiri urðu mörkin ekki og San Lorenzo fagnaði þar með sínum fyrsta sigri í Copa Libertadores, en sigurinn tryggði argentínska liðinu einnig sæti á HM félagsliða, þar sem San Lorenzo verður fulltrúi Suður-Ameríku. Þetta er í fyrsta sinn í fjögur ár sem brasilískt lið stendur ekki uppi sem sigurvegari í keppninni. Þess má geta að San Lorenzo er uppáhaldslið Frans páfa, en hann tók á móti liðinu í Vatíkaninu eftir að það varð argentínskur meistari í fyrra.Frans páfi ásamt liðsmönnum San Lorenzo.Vísir/AFP
Fótbolti Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Golf Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Stór varða í langþráðri endurkomu Patriks: „Eitt skref í einu“ Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Hjartaaðgerð McTominay gekk vel Mourinho fékk úðara að gjöf Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Treyjur Liverpool taka breytingum Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst og Hákon er þar í eldlínunni Árni Gautur heiðraður af ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur R. 1-2 | Spyrntu sér frá botninum Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 1-1| Blikar á toppnum inn í úrslitakeppni Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Daníel Guðjohnsen fékk tækifæri eftir mikla óvissu Elche - Real Sociedad | Orri í eldlínunni Lið Elíasar bjargaði stigi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjá meira