Yfirmenn Dortmund og Bayern í hart vegna Reus Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. ágúst 2014 14:45 Marco Reus á æfingu með Dortmund. vísir/getty
Hans-Joachim Watzke, framkvæmdastjóri þýska liðsins Borussia Dortmund, er frekar pirraður vegna orða kollega síns hjá Bayern München, Karl-Heinz Rummenigge, um samningamál framherjans MarcoReus. Rummenigge sagði við þýska miðla í síðustu viku að Bayern færi rólega í það að stela Marco Reus af Dortmund, en félagið er búið að hirða Mario Götze og Robert Lewandowski af Dortmund á síðustu tveimur árum. Rummenigge upplýsti alla um, að riftunarverð Reus í sumar væri 35 milljónir evra, en ef Bayern biði fram á næsta sumar væri sú tala tíu milljónum evra lægri. Það þýðir að Dortmund getur ekki hafnað 25 milljóna evra tilboði í framherjann næsta sumar skrifi hann ekki undir nýjan samning. „Borussia Dortmund verður að lýsa yfir pirringi sínum vegna orða Karl-Heinz Rummenigge, og hvernig hann talaði um innanhúsmál Dortmund þrjá daga í röð í fjölmiðlum,“ segir Watzke í yfirlýsingu á heimasíðu Dortmund. „Það vita allir knattspyrnuáhugamenn hvað vakir fyrir honum með svona yfirlýsingum. Með þessum orðum veit Karl-Heinz Rummenigge að hann er að skemma enn frekar tæpt samband Borussia Dortmund og Bayern München.“ „Við munum ekki frekar en fyrri daginn gefa út neina upplýsingar um samningamál okkar leikmanna opinberlega.“
Fótbolti Mest lesið Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Fótbolti Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Fótbolti „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Fótbolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Neitar að róa með Normönnum Fótbolti Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Sport Fleiri fréttir Leik lokið: Grindavík/Njarðvík - Víkingur 1-1 | Jafnt suður með sjó Leik lokið: FH - Valur 1-1 | FH mistókst að komast á toppinn Kominn með nýtt starf eftir að hafa mistekist að koma Ítalíu á HM Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi England - Gana | Blandar Kane sér í baráttuna um Gullskóinn? Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Ronaldo fyrstur til að skora á sex heimsmeistaramótum Ipswich ræður gamla stjóra Úlfanna Neitar að róa með Normönnum Ganga hús úr húsi til að safna pening til að bjarga félaginu sínu Hörð barátta um Gullskóinn Engin skylda að gefa á Cristiano Ronaldo Erfitt fyrir leikmenn að bíða eftir veðri Alvarez segir að hann vilji fara frá Atletico „Það er stórt“ að skáka Eiði Smára „Held að sú umræða sé bara heima á Íslandi“ Menn dagsins á HM: Stefnir í rosalegt kapphlaup um Gullskóinn á HM Segist hafa sett bölvun á Harry Kane fyrir kvöldið Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Manchester United fær landsvæði fyrir nýja leikvanginn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik „Hefðum við nýtt okkar færi væri ég ekki að fara heim með núll stig“ „Fengum það sem við verðskulduðum“ „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Aðalsteinn eftir fyrsta sigurinn: „Vinnusemi dugnaður og samvinna skilaði sigrinum“ „Vitum að við getum skorað fullt af mörkum“ Óskar Smári eftir sigurinn: „Birna er einn hraðasti leikmaðurinn í hausnum“ Sjá meira