Costa Concorida komið til Genóa Jón Júlíus Karlsson skrifar 27. júlí 2014 12:17
Ítalska skemmtiferðaskipið Costa Concordia kom í nótt upp að ströndum Genóa þar sem skipið verður fært til hafnar og rifið. Björgun skipsins er umfangsmesta og dýrasta björgunaraðgerð sem framkvæmd hefur verið á sjó. Skemmtiferðaskipið Costa Concordia steytti á skeri við ítölsku eyjuna Giglio undan ströndum Toskana héraðs í janúar árið 2012 með þeim afleiðingum að 32 farþegar skipsins létu lífið. Skipstjóri Costa Concordia hefur neitað sök um að hafa orðið fjölda farþega að bana með vítaverðu gáleysi og fyrir að yfirgefa skipið á slysstað. Hann gæti átt yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsi. Vinna við að koma skipinu af strandstað hefur tekið tvö ár og er lýst sem umfangsmestu og dýrustu björgurnaraðgerð sem framkvæmd hefur verið á sjó. Fjóra daga tók að draga skemmtiferðaskipið til Genóa með dráttarbátum á gönguhraða. Áætlað er að skipið komi til hafnar eftir hádegi í dag. Costa Concordia skemmtiferðaskipið var byggt og sjósett í Genóa fyrir níu árum við mikinn mannfögnuð. Matteo Renzi, forsætisráðherra Ítalíu, verður viðstaddur þegar skipið kemur til hafnar. Renzi hefur hrósað björgunaraðilum í hásterkt og segir það sýna að Ítalir geti tekist á við hvaða verkefni sem er. Ítölum hafi tekist að framkvæma það sem margir töldu ómögulegt - að koma flaki Costa Concordia í heilu lagi til hafnar. Umhverfisverndarsinnar höfðu varað við að mengunarslys gæti hlotist af því draga skipið til hafnar og spáðu jafnframt að skipið ætti eftir að liðast í sundur. Síðasta ferð Costa Concordia hefur hins vegar gengið að óskum. Áður en vinna við að rífa skipið hefst þá verður gerð ítarleg leit að líki skipverja sem hefur ekki enn fundist. Gert er ráð fyrir að um 80 prósent af stáli skipsins verði endurunnið. Áætlaður kostnaður við björgun á flaki Costa Concordia hleypur á um 1,2 milljörðum sterlingspunda eða um 230 milljörðum króna.
Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Innlent Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana Innlent Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Erlent Fleiri fréttir Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Sjá meira