Fótbolti

Svona kemst England áfram

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Englendingar halda í veika von.
Englendingar halda í veika von. Vísir/Getty
England er stigalaust eftir fyrstu tvo leikina í D-riðli á HM í Brasilíu en heldur engu að síður samt í veika von um að komast áfram í 16-liða úrslitin.

England hefur tapað fyrir Ítalíu og Úrúgvæ, báðum leikjum 2-1, og mætir Kosta Ríku í lokaleik sínum í riðlinum á föstudaginn í næstu viku.

Ítalía mætir Kosta Ríku í dag og fyrsta skilyrðið er að Ítalía vinni leikinn, sem og gegn Úrúgvæ í lokaumferðinni.

Það gefur síðan augaleið að lærisveinar Roy Hodgson þurfa að leggja Miðameríkuríkið Kosta Ríku að velli á sama tíma.

Verði það niðurstaðan munu England, Úrúgvæ og Kosta Ríka öll enda með þrjú stig í riðlinum og mun þá markatala ráða för. Sem stendur er England með tvö mörk í mínus, Úrúgvæ eitt í mínus en Kosta Ríka tvö í plús eftir óvæntan 3-1 sigur á Úrúgvæ um helgina.


Tengdar fréttir

Suarez afgreiddi England

Englendingar eru komnir með annan fótinn upp í flugvél á leið heim eftir að hafa tapað, 2-1, fyrir Úrúgvæ á HM í kvöld. Luis Suarez skoraði bæði mörk Úrúgvæja og Wayne Rooney náði loksins að skora á HM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×