Fótbolti

Aron er afkvæmi Kevin Bacon og Draco Malfoy

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Aron í baráttu við Muntari og Essien í leik Bandaríkjanna og Ghana.
Aron í baráttu við Muntari og Essien í leik Bandaríkjanna og Ghana. Vísir/Getty
Grínistinn Jimmy Fallon sem sér um The Tonight Show í Bandaríkjunum kynnti Aron Jóhannsson sem afkvæmi Kevin Bacon og Draco Malfoy í þætti sínum í gær.    

Fallon byrjaði á því að óska leikmönnum bandaríska liðsins til hamingju með sigurinn gegn Ghana. Hrósaði hann leikmönnum liðsisins fyrir að fá Bandaríkjarmenn til þess að horfa á fótbolta sem hann taldi ómögulegt.

Fallon hélt kynningu á nokkrum af leikmönnum bandaríska liðsins sem var í léttari kantinum. Var okkar maður meðal annars kynntur á eftir Tim Howard, markmanni Everton.

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan. Fallon talar um Aron eftir 2,15 mínútur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×