Fótbolti

Sonur Pele í fangelsi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Pele hefur verið í sviðsljósinu að undanförnu vegna HM sem fer fram í Brasilíu í sumar.
Pele hefur verið í sviðsljósinu að undanförnu vegna HM sem fer fram í Brasilíu í sumar. Vísir/Getty
Edinho, sonur knattspyrnugoðsagnarinnar Pele, hefur veirð dæmdur til 33 ára fangelsisvistar.

Edinho spilaði sem markvörður á sínum tíma með Santos á tíunda áratug síðustu aldar en komst fyrst í kast við lögin árið 2005.

Hann hefur átt við fíkniefnavanda að stríða og hefur áður verið dæmdur fyrir fíkniefnabrot. Hann var dæmdur nú fyrir peningaþvott í tengslum við sölu fíknuefna.

Edinho hefur starfað sem markvarðaþjálfari hjá Santos en faðir hans lék með félaginu allan sinn atvinnumannaferil í Brasilíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×