Kennari rakaði stúlku undir höndunum í miðri kennslustund Kjartan Atli Kjartansson skrifar 31. maí 2014 19:18 Atvikið hefur vakið nokkuð mikla athygli í Ástralíu
Kennari í skóla í fylkinu Victoria í Ástralíu rakaði handakrika nemanda í tíma. Móðir stúlkunnar er brjáluð vegna málsins og segir dóttur sína hafa verið í sjokki þegar hún kom heim úr skólanum. Stúlkan, sem er fjórtan ára, er með taugasjúkdóm, á við námserfiðleika að stríða og gengur í skóla fyrir fötluð börn. Raksturinn átti sér stað í einskonar lífsleiknitíma. Hún var eini nemandinn í kennslustundinni. Kennarinn tjáði stúlkunni að henni yrði strítt ef hún myndi ekki raka sig undir höndunum.Móðirin ræddi við kennarann„Ég ræddi málin við kennarann daginn eftir og hún tjáði mér að hún væri í fullum rétti,“ segir móðirin. Móðirin viðurkenndi að hafa vitað að rakstur líkamshára hafi verið hluti af umfjöllunarefninu í þessum lífsleiknitímum. Hún segist þó ekki hafa trúað sínum eigin augum þegar hún sá að handakrikar dóttur hennar hafi verið rakaðir Skólastjórinn í skólanum sagði að í framtíðinni myndu kennarar sækja um leyfi frá foreldrum þegar raka ætti nemendur undir höndunum. Hann benti á að stúlkan hafi aldrei beðið um að kennarinn hætti að raka hana undir höndunum. „Hún á mjög erfitt með að tjá sig," segir móðrin og gefur því lítið fyrir útskýringar skólayfirvalda. Hún telur að þessi ákvörðun skólans - að raka handakrika dóttur hennar - sé tímaskekkja. „Hún hefur áður sagt mér að hana langi ekki til að raka sig. Hún hefur séð mig raka mig undir höndunum og fundist það einkennilegt. Ég hef alltaf sagt henni að það sé allt í lagi, hún eigi bara að koma til mín þegar hún sé tilbúin.“ Ekki er vitað hvort móðir stúlkunnar ætli að fara lengra með málið.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Fleiri fréttir Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Sjá meira