Rússar og Kínverjar undirrita samning um gasviðskipti til 30 ára Randver Kári Randversson skrifar 21. maí 2014 15:55 Vladimír Pútín Rússlandsforseti, Alexei Miller, forstjóri Gazprom og Zhou Jiping, yfirmaður CNPC, við undirritun samningsins í Sjanghæ í dag. VÍSIR/AP
Rússar og Kínverjar undirrituðu í dag samning um sölu á rússnesku gasi til Kína. BBC greinir frá þessu. Hér er um risasamning að ræða um viðskipti milli rússneska gasfyrirtækisins Gazprom og China National Petroleum Corp (CNPC) til næstu 30 ára. Samningurinn felur í sér sölu á um 38 milljörðum rúmmetra af gasi til Kína á hverju ári, frá árinu 2018. Talið er að virði samningsins sé um 400 milljarðar dollara og hækkuðu hlutabréf í Gazprom um 2% við þessi tíðindi. Samningurinn hefur verið í vinnslu undanfarin 10 ár og hefur helsta deiluefnið í samningaferlinu snúist um söluverð á gasinu, þar sem Kínverjar eru sagðir hafa gengið hart fram í kröfum sínum. Samningurinn er mikilvægur fyrir bæði ríki, en hann er talinn til marks um að Rússar leggi nú aukna áherslu á að efla samskipti sín við Austurlönd í stað þess að horfa til vesturs. Kína er stærsti einstaki viðskiptaaðili Rússa og stefna ríkin tvö á að tvöfalda viðskipti sín á milli á næstu 10 árum.
Mest lesið Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Erlent Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Erlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Innlent Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Innlent Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Erlent Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Innlent Fleiri fréttir Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Sjá meira