Hálf níræð gleðikona ekki af baki dottin Kjartan Atli Kjartansson skrifar 28. maí 2014 15:18 Hún hefur verið gleðikona í tæpan áratug, hún Sheila Vogel-Coupe.
Hin 85 ára gamla Sheila Vogel-Coupe er ein elsta gleðikona heims. „Ég held að ég muni aldrei hætta þessu,“ segir hún í viðtali við bresku sjónvarpsstöðina Channel 4. Ný þáttaröð sem hefst á morgun á stöðinni sem ber titilinn My Granny the Escort, eða Gleðikonan hún amma mín. Sheila ákvað að gerast gleðikona árið 2004, eftir að seinni maður hennar féll frá. Hún vildi flýja einmannaleikann. Hún varð fljótt mjög stórtæk í þessari iðju, sem er gjarnan nefnd elsta iðngrein heims. Þegar best gekk var hún með tíu fasta viðskiptavini á viku. En eftir uppskurð þurfti hún að minnka við sig. „Ég veit að ég er mjög, mjög kynþokkafull,“ segir hún og heldur áfram: „Menn hringja stundum í mig og biðja mig að segja eitthvað kynþokkafullt, því það kveikir í þeim.“Fjölskyldan afneitað henni Aðeins tvö barnabörn Sheilu tala við hana. Aðrir fjölskyldumeðlimir eru ósáttir við þetta val hennar á starfsvettvangi og neita að tala við hana. Sheila hefur vakið athygli breskra fjölmiðla og finnst börnum hennar það niðurlægjandi. „Það mætti halda að ég hafi framið morð, miðað við viðbrögð þeirra. Þau báðu mig að lofa því að ég myndi hætta því að vera gleðikona. Ég sagði þeim bara að éta það sem úti frýs,“ segir hún. Sheila komst fyrst í fjölmiðla þegar barnabarnið hennar, Katie Waissel, vakti athygli í bresku X-factor keppninni.Elskar kynlíf „Ég elska kynlíf, það er mikilvægasti þátturinn í þessu öllu saman. Bara að hugsa um kynlíf lætur mér líða vel,“ segir hin hálf níræða gleðikona. „En þetta er snýst ekki bara um kynlíf. Þetta er líka ákveðinn félagsskapur. Ég er búinn að vera ein í næstum áratug og ég verð einmana.“ Í þáttunum Gleðikonan hún amma mín er einnig rætt við hina 64 ára gömlu Beverly sem – eins og Sheila – er amma. Beverly er 64 ára gömul og býður mönnum heim til sín. Hin 57 ára gamla Sophie er líka til umjföllunar í þáttunum. Þættirnir byrja á dagskrá Channel 4 á morgun. Hér að neðan má sjá viðtal við Sheilu.
Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Erlent Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Innlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Fleiri fréttir R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Sjá meira