Verjendur Mladic segja hann föðurlandsvin Bjarki Ármannsson skrifar 19. maí 2014 10:29 Mladic árið 2011. Vísir/AFP
Verjendur Ratko Mladic, fyrrum hershöfðingja í her Bosníu-Serba, hófu í dag málflutning sinn hjá Alþjóða stríðsglæpadómstólnum í Haag. Mladic er sakaður um þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyninu frá því í Bosníustríðinu sem stóð yfir frá 1992 til 1995.Frá þessu greinir BBC. Hinn 72 ára Mladic er með þeim allra þekktustu einstaklingunum sem dregnir hafa verið fyrir dómstólinn. Kærurnar gegn honum eru ellefu talsins og hann neitar þeim öllum. Meðal annars er honum gert að sök að hafa skipað mönnum sínum að skjóta á óbreytta borgara í umsátrinu um borgina Sarajevo sem stóð yfir í þrjú ár og kostaði um tíu þúsund manns lífið. Hann er einnig ásakaður um að hafa komið að fjöldamorðunum í Srebrenica árið 1995, þar sem um átta þúsund íslamskir menn og drengir voru teknir af lífi. Atburðirnir í Srebrenica eru líklegast mesta voðaverk sem átt hefur sér stað í Evrópu frá seinni heimsstyrjöld.Mladic (t.v.) og Karadzic árið 1993.Vísir/AFPVerjendur Mladic segja að hann hafi aldrei gert annað en að fylgja skipunum yfirmanna. Sömuleiðis hafa þeir lýst honum sem föðurlandsvini sem barðist til að vernda þjóð sína. Sjálfur hefur Mladic gagnrýnt réttarhöldin og kallað þau „satanísk.“ Skoðanir á fyrrum hershöfðingjanum eru skiptar en margir eftirlifendur stríðsins í Bosníu, þá sérstaklega bosnískir múslimar, telja Mladic ábyrgan fyrir því sem þeir þurftu að þola á stríðsárunum. Mladic var handtekinn árið 2011 eftir að hafa verið á flótta frá yfirvöldum í sextán ár. Einnig er um þessar mundir réttað yfir Radovan Karadzic, fyrrum hershöfðingja Bosníu-Serba og félaga Mladic, sem einnig er kærður fyrir þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyninu.
Tengdar fréttir Verjandi Mladic segir hann ekki færan um að koma fyrir dóm Verjandi Radko Mladic segir ómögulegt að halda uppi vitænum samræðum við stríðsherrann fyrrverandi, sem hafi í þrígang fengið heilablóðfall og þrugli nú tóma vitleysu. Hann sé ekki fær um að koma fyrir dóm. 29. maí 2011 18:42 Mladic segist enga glæpi hafa framið Sækjandi við stríðsglæpadómstól í Haag segir að Ratko Mladic herforingi og sveitir hans hafi verið orðnar vel þjálfaðar í morðum þegar kom að fjöldamorðunum í Srebrenica sumarið 1995. Aðalmeðferð í réttarhöldum hans er hafin. 17. maí 2012 00:15 Mladic neitar að mæta fyrir rétt Ratko Mladic fyrrverandi hershöfðingi í her Bosníu Serba ætlar ekki að mæta fyrir stríðsglæpadómstólinn í Haag í dag eins og áætlað hafði verið. Til stóð að Mladic myndi tjá sig um ákæruatriðin gegn sér frammi fyrir dómurunum í dag en af því verður ekki þar sem lögfræðingar hans hafa enn ekki verið vottaðir af réttinum. Mladic er ákærður í ellefu liðum, þar á meðal fyrir þjóðarmorð í tengslum við stríðið í Bosníu á fyrri hluta tíunda áratugarins. 4. júlí 2011 08:48 Var í meira en fimmtán ár á flótta Hershöfðinginn Ratkó Mladic hefur verið handsamaður eftir meira en fimmtán ár á flótta. Hann er talinn bera ábyrgð á þjóðarmorði í Bosníu. 26. maí 2011 18:45 Ratko Mladic handtekinn - eftirlýstur fyrir þjóðarmorð Serbneski hershöfðinginn Ratko Mladic hefur verið handtekinn í heimalandi sínu. Serbnesk útvarpsstöð greindi fyrst frá þessu í morgun en Boris Tadic forseti Serbíu tilkynnti þetta á blaðamannafundi rétt í þessu. Mladic hefur í mörg ár verið eftirlýstur fyrir stríðsglæpi og þjóðarmorð í Bosníu stríðinu. 26. maí 2011 10:59 Segja Ratko of veikan fyrir framsal Fresta þurfti réttarhöld yfir Ratko Mladic sem varða framsal hans til stríðsglæpadómstólsins í Haag vegna bágrar heilsu. 27. maí 2011 07:55 Mladic vísað úr réttarsalnum Dómarar stríðsglæpadómstóls á vegum Sameinuðu þjóðanna vísuðu Ratko Mladic, fyrrverandi herforingja Bosníu-Serba, út úr réttarsalnum í gær. 5. júlí 2011 05:30 Réttarhöld yfir Mladic halda áfram Réttarhöldin yfir slátraranum frá Bosníu, Ratko Mladic, hófust aftur í dag með vitnaleiðslum í Haag fyrir Alþjóðadómstólnum um stríðsglæpi í fyrrum Júgóslavíu. 9. júlí 2012 14:05 Mladic segist ekki hafa fyrirskipað fjöldamorðin Fyrrverandi hershöfðinginn Ratkó Mladic segist ekki hafa fyrirskipað fjöldamorð á mörg þúsundum múslima í Srebrenica árið 1995. Þetta hafa fjölmiðlar eftir Darko syni hans sem spjallaði við fjölmiðla eftir að hann heimsótti föður sinn í Serbíu í dag. 29. maí 2011 15:27 Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Erlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Fleiri fréttir Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Sjá meira
Verjandi Mladic segir hann ekki færan um að koma fyrir dóm Verjandi Radko Mladic segir ómögulegt að halda uppi vitænum samræðum við stríðsherrann fyrrverandi, sem hafi í þrígang fengið heilablóðfall og þrugli nú tóma vitleysu. Hann sé ekki fær um að koma fyrir dóm. 29. maí 2011 18:42
Mladic segist enga glæpi hafa framið Sækjandi við stríðsglæpadómstól í Haag segir að Ratko Mladic herforingi og sveitir hans hafi verið orðnar vel þjálfaðar í morðum þegar kom að fjöldamorðunum í Srebrenica sumarið 1995. Aðalmeðferð í réttarhöldum hans er hafin. 17. maí 2012 00:15
Mladic neitar að mæta fyrir rétt Ratko Mladic fyrrverandi hershöfðingi í her Bosníu Serba ætlar ekki að mæta fyrir stríðsglæpadómstólinn í Haag í dag eins og áætlað hafði verið. Til stóð að Mladic myndi tjá sig um ákæruatriðin gegn sér frammi fyrir dómurunum í dag en af því verður ekki þar sem lögfræðingar hans hafa enn ekki verið vottaðir af réttinum. Mladic er ákærður í ellefu liðum, þar á meðal fyrir þjóðarmorð í tengslum við stríðið í Bosníu á fyrri hluta tíunda áratugarins. 4. júlí 2011 08:48
Var í meira en fimmtán ár á flótta Hershöfðinginn Ratkó Mladic hefur verið handsamaður eftir meira en fimmtán ár á flótta. Hann er talinn bera ábyrgð á þjóðarmorði í Bosníu. 26. maí 2011 18:45
Ratko Mladic handtekinn - eftirlýstur fyrir þjóðarmorð Serbneski hershöfðinginn Ratko Mladic hefur verið handtekinn í heimalandi sínu. Serbnesk útvarpsstöð greindi fyrst frá þessu í morgun en Boris Tadic forseti Serbíu tilkynnti þetta á blaðamannafundi rétt í þessu. Mladic hefur í mörg ár verið eftirlýstur fyrir stríðsglæpi og þjóðarmorð í Bosníu stríðinu. 26. maí 2011 10:59
Segja Ratko of veikan fyrir framsal Fresta þurfti réttarhöld yfir Ratko Mladic sem varða framsal hans til stríðsglæpadómstólsins í Haag vegna bágrar heilsu. 27. maí 2011 07:55
Mladic vísað úr réttarsalnum Dómarar stríðsglæpadómstóls á vegum Sameinuðu þjóðanna vísuðu Ratko Mladic, fyrrverandi herforingja Bosníu-Serba, út úr réttarsalnum í gær. 5. júlí 2011 05:30
Réttarhöld yfir Mladic halda áfram Réttarhöldin yfir slátraranum frá Bosníu, Ratko Mladic, hófust aftur í dag með vitnaleiðslum í Haag fyrir Alþjóðadómstólnum um stríðsglæpi í fyrrum Júgóslavíu. 9. júlí 2012 14:05
Mladic segist ekki hafa fyrirskipað fjöldamorðin Fyrrverandi hershöfðinginn Ratkó Mladic segist ekki hafa fyrirskipað fjöldamorð á mörg þúsundum múslima í Srebrenica árið 1995. Þetta hafa fjölmiðlar eftir Darko syni hans sem spjallaði við fjölmiðla eftir að hann heimsótti föður sinn í Serbíu í dag. 29. maí 2011 15:27