Erlent

Kafari beið bana við björgunarstörf í Suður-Kóreu

Vísir/AFP
Kafari beið bana í morgun við björgunarstörf í Suður-Kóreu þar sem hann vann við að leita að líkum í ferjunni sem sökk þar í síðasta mánuði.

Maðurinn, sem var 53 ára gamall, missti meðvitund við vinnu sína og lést á spítala skömmu síðar.

Fjöldi manna hefur unnið við flakið frá því um miðjan síðasta mánuð en 476 voru um borð í ferjunni þegar hún sökk og af þeim komust aðeins 174 lífs af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×