Transkonu skipað að keppa sem karlmaður Stefán Ó. Jónsson skrifar 7. mars 2014 12:43 MYND/FACEBOOK SÍÐA CHLOIE JOHNSON
Transkonan Chloie Johnson lögsækir nú skipuleggjendur CrossFit keppninnar fyrir að meina henni að keppa á leikunum sem kona. Johnson sóttist eftir því að keppa á CrossFit leikunum í fyrra þar sem margt hraustasta fólk heims er saman komið og krefur hún skipuleggjendur um á þriðja hundrað milljóna króna í skaðabætur. Í málsókninni er meðal annars rakið að Johnson hefur litið á sig sem konu frá 12 ára aldri og að samkvæmt lögum í heimafylki hennar Kaliforníu er hún skilgreind sem kona. Hún gekk í gegnum kynleiðréttingu árið 2006 og hefur verið í hormónameðferð allar götur síðan. Í aðdragana málsins sendi liðsfélagi Johnson nafnlausan tölvupóst á skipuleggjendur keppninnar þar sem hann spurðist fyrir um þátttöku transfólks á leikunum. CrossFit ákvað í kjölfarið að keppendur skildu flokkaðir eftir kyni við fæðingu. Lögmaður CrossFit samtakana heldur því til streitu að Chloie Johnson hafi fæðst sem karlmaður og skuli því keppa sem slíkur. í bréfaskiptum milli lögmanna Johnson og samtakana kemur einnig fram að Crossfit „áskilur sér rétt til að standa vörð um hagsmuni allra keppenda og leikanna sjálfra“ „Grundvallarforsenda ákvörðunarinnar er sú að þrátt fyrir kynleiðréttingu hefur Johnson erfðamengi karlmanns og hefur hún þannig forskot á kvenkeppendur,“ er haft eftir lögmanni leikanna. Lögmaður Johnson fer fram á að CrossFit breytir reglum sínum í samræmi við lög alþjóða Ólympísambandsins sem heimila íþróttafólki að keppa með öðrum af sama kyni. Frekari upplýsingar um málið má nálgast á vefsíðu CNN.
Mest lesið Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Innlent Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Innlent „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Innlent Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Innlent Rak í rogastans þegar hann las viðtalið við Bubba Innlent „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Innlent Skipstjóri handtekinn í Reykjavíkurhöfn Innlent Aldrei séð annan eins hraðakstur eftir þrjátíu ár í lögreglunni Innlent Ákvörðun dómsmálaráðherra gríðarleg vonbrigði Innlent Fleiri fréttir Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Bandamenn fá hótunarbréf um 25 til 40 prósent toll „Þeir verða að geta varið sig“: Hættir við að hætta vopnasendingum Yfir hundrað látnir í Texas Ellefu dagar milli nýrra jarðganga í Færeyjum Samgönguráðherrann lést daginn sem Pútín rak hann Pútín rekur samgönguráðherrann eftir miklar raskanir á flugi Eldgos í Lewotobi Laki Laki í Indónesíu Líkir tilætlunum Musk við lestarslys Fundin sek um að myrða ættingja með eitruðum sveppum Á níunda tug látin í hamfaraflóðum Friðarviðræður hafnar í Katar og Netanyahu heldur til Washington Banamaður ráðherra fær að stíga fæti út fyrir fangelsið Um sjötíu látnir í flóðunum og stúlknanna enn leitað Hegseth hafi logið því að gengið sé á vopnabirgðir Bandaríkjanna Fjörutíu og þrír látnir og umfangsmiklar leitarðagerðir standa yfir Elon Musk stofnar nýjan stjórnmálaflokk Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Tuttugu og fimm stúlkna saknað úr sumarbúðum vegna flóða Minnst þrettán látnir og tuttugu barna saknað eftir flóð í Texas Rússar sagðir nota efnavopn í Úkraínu í auknum mæli Sjá meira
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent