Innlent

Flugnarækt á Vestfjörðum í bígerð

Svarta hermannaflugan er algeng víða um heim.
Svarta hermannaflugan er algeng víða um heim. Mynd/WikiCommons
Flugnabúskapur til framleiðslu á skordýrapróteini til fóðurgerðar gæti orðið að raunveruleika á Vestfjörðum.

Ræktunarfélag fóðurskordýra hlaut nýverið fyrstu verðlaun í Nýsköpunarkeppni Vestfjarða og verður nú ráðist í rannsóknir. Að sögn BB.is eru aðstæður meðal annars góðar á Vestfjörðum vegna þess hve mikið af lífrænum úrgangi fellur til frá sjávarútveginum og fiskeldinu fyrir vestan.

Flugan, sem um ræðir heitir Svarta hermannaflugan, en lirfa hennar stækkar með ógnarhraða og telur Matvælastofnun Sameinuðuþjóðanna hana vænlega til fóðurframleiðsu fyrir til dæmis fiskeldi og kjúklingarækt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×