Chelsea í undanúrslit en Southampton er úr leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. desember 2014 21:44 Vísir/Getty
Chelsea, topplið ensku úrvalsdeildarinnar, og C-deildarliðið Sheffield United tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum enska deildabikarsins í fótbolta. Chelsea sló út Derby en Sheffield United sendi úrvalsdeildarlið Southampton út úr keppninni. Eden Hazard, Filipe Luis og Andre Schurrle skoruðu mörk Chelsea í 3-1 útisigri á enska b-deildarliðinu Derby County en leikurinn fór fram á Pride Park í Derby. Jose Mourinho hafði þarna betur gegn Steve McClaren sem er knattspyrnustjóri Derby. Þetta var ekki eintóm gleði fyrir Chelsea þrátt fyrir þægilegan sigur því bæði Kurt Zouma og Didier Drogba fór meiddir af velli í leiknum. Eden Hazard kom Chelsea í 1-0 strax á 23. mínútu eftir sendingu frá Cesc Fabregas og Filipe Luis kom Chelsea í 2-0 á 56. mínútu með marki beint úr aukaspyrnu. Craig Bryson minnkaði muninn í 2-1 á 71. mínútu en Andre Schurrle innsiglaði sigurinn á 82. mínútu eða aðeins þremur mínútum eftir að Derby missti Jake Buxton af velli með rautt spjald. Þjóðverjinn fylgdi þarna á eftir skoti Frakkans Loic Remy. Marc McNulty skoraði eina mark leiksins þegar enska C-deildarliðið Sheffield United sló út Southampton. Sigurmarkið kom á 63. mínútu leiksins. Southampton endaði leikinn tíu á móti ellefu en Florin Gardos fékk rautt spjald í lokin fyrir brot á markaskoraranum Marc McNulty. Nigel Clough er knattspyrnustjóri Sheffield United en liðið fór alla leið í undanúrslit enska bikarsins á síðustu leiktíð þar sem liðið varð reyndar að sætta sig við tap á móti Hull. Southampton hefur verið spútniklið ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili en blaðran virðist vera sprungin því þetta var fimmti tapleikur liðsins í röð. Seinni tveir leikirnir í átta liða úrslitunum fara fram á morgun en þá mætast Tottenham Hotspur og Newcastle United á White Hart Lane í öðrum leiknum en í hinum tekur b-deildarliðið Bournemouth á móti Liverpool í Bournemouth.
Enski boltinn Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Fleiri fréttir Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Sjá meira