Obama kynnir nýjar njósnareglur Guðsteinn Bjarnason skrifar 17. janúar 2014 17:30 Barack Obama kynnti breytingarnar í ræðu í dag. Nordicphotos/AFP „
Við getum ekki einhliða afvopnað leyniþjónustustofnanir okkar,” sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti um leið og hann kynnti nýjar reglur um njósnastarfsemi Bandaríkjanna. Breytingarnar fela meðal annars í sér strangara eftirlit með starfsemi leyniþjónustunnar og strangari reglur um söfnun upplýsinga, meðal annars um símtöl einstaklinga. Ein breytingin er sú að leyniþjónustan fær ekki aðgang að þeim upplýsingum, sem safnað hefur verið, nema með dómsúrskurði eða ef um „raunverulegt neyðarástand” er að ræða. Jafnframt tók hann fram að hin víðtæka söfnun upplýsinga um símtöl og fleira muni halda áfram, en sú breyting verði gerð að stjórnvöld muni ekki lengur geyma þessar upplýsingar hjá sér. Enn eigi þó eftir að útfæra það, hvernig upplýsingarnar verði geymdar. „Þetta er öflugt verkfæri,” sagði hann um þessa víðtæku upplýsingasöfnun, „en opinber söfnun og geymsla upplýsingabálka af þessu tagi býður einnig upp á misnotkun.”Í ræðu sinni nefndi hann í fyrsta sinn á nafn uppljóstrarann Edward Snowden, þakkaði honum að vísu alls ekki fyrir uppljóstranirnar en sagði að umræðan, sem hófst eftir að leyniskjölin frá Snowden tóku að birtast í fjölmiðlum muni styrkja Bandaríkin. Breytingarnar ganga engan vegin jafn langt og gagnrýnendur Bandaríkjanna hafa krafist, en í ræðu sinni varði Obama harðlega starfsemi leyniþjónustunnar og sagði sum erlend ríki hafa „gert sér upp undrun” þegar í ljós kom að Bandaríkin hafa stundað víðtækar njósnir um heim allan. Þau sjálf hafi gert slíkt hið sama.
Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Sjá meira