Nýliðar á Fimmvörðuhálsi 15. október 2014 10:00 Hópurinn aðstoðaði skálavörð við að ganga frá og þrífa skálann í Langadal og taka niður fánastöngina. aðsendar myndir
Lilja á Valahnúk en þangað var rölt daginn eftir gönguna yfir Fimmvörðuháls. Útsýnið þar er magnað. Lilja Björk Baldursdóttir fór í sína fyrstu æfingaferð með Hjálparsveit skáta í Kópavogi um síðustu helgi, en hún hefur lengi haft áhuga á útivist og hentar hjálparsveitarstarfið henni því vel. „Ástæðan fyrir þessu brölti mínu, sem það er, þar sem ég er einstæð þriggja barna móðir og þetta tekur allan minn frítíma, er sú að ég fæ ómetanlega þjálfun í fjallamennsku þar sem okkur er kennt meðal annars að veita fyrstu hjálp, klifur, vetrarfjallamennska, snjóflóðaleit og rötun.“ Ferðin um helgina með hjálparsveitinni var á Fimmvörðuháls. Lagt var af stað klukkan sjö á laugardagsmorgun og gengið af stað um klukkan tíu. „Færið var ágætt um helgina. Ég gekk þarna síðast í júní og þá var meiri snjór. Núna var undirlagið harðara og til dæmis var mikið harðfenni í Bröttufönn þar sem við þurftum að leggja línu. Heljarkambur var líka mjög erfiður yfirferðar fyrir þá sem ekki voru með brodda undir skóm. Við komum niður í Langadal í myrkri þannig að við þurftum að nota höfuðljós síðasta spölinn sem var nokkuð krefjandi. Við hjálpuðum svo skálaverði að ganga frá skálanum í Langadal (Skagfjörðsskála) fyrir veturinn. Við vorum 35 manns í ferðinni og þar af voru fjórtán nýliðar en þeir sem fara í gegnum nýliðaþjálfun þurfa að verða sér úti um ýmsan búnað fyrir fjallaferðamennsku og vera komnir með allan búnað áður en þjálfun lýkur eftir átján mánuði,“ segir Lilja.Lilja segir félagsskapinn í hjálparsveitinni vera frábæran.Hún segir félagsskapinn ekki vera síst mikilvægan þátt í hjálparsveitastarfinu. „Hópurinn er samheldinn og skemmtilegur. Mér finnst líka gott að geta gefið af mér til samfélagsins og tekið þátt í að hjálpa fólki sem lendir í erfiðum aðstæðum í lífinu. Það er alveg ótrúlega gefandi að öðlast þessa reynslu og að geta miðlað henni til samfélagsins á þennan hátt. Þessi þjálfun mun fylgja mér alla ævi og gera mig að hæfari einstaklingi til að bjarga mér við erfiðar aðstæður í lífinu og einnig opnast sá möguleiki að ég geti jafnvel nýtt mér þessa reynslu seinna meir við atvinnusköpun í fjallaferðamennsku.“
Mest lesið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Lífið Synir Britney gengu tískupallinn í París Tíska og hönnun Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Lífið Fleiri fréttir Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Sjá meira
Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Lífið
Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Lífið