Erlent

Dæmd til fangelsisvistar vegna garðs

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Getty
Bandarísk kona var sektuð af yfirvöldum í Tennessee og þurfti að sitja í fangelsi í sex tíma fyrir að hafa ekki sinnt garði sínum nógu vel. Karen Holloway hefur viðurkennt að hafa ekki stundað nægilega mikla garðvinnu en segist ekki hafa átt skilið að sitja inni.

„Þetta er ekki rétt. Af hverju var verið að setja mig í fangelsi með barnaníðingum og fólki sem hefur framið alvöru glæpi, vegna þess að ég sinnti garðinum mínum ekki nógu vel,“ segir Karen við WVLT stöðina.

Upprunalega ætlaði dómari að dæma hana til fimm daga fangelsisvistar en hann dró þó úr því. Karen bauðst til að vinna samfélagsþjónustu í fimm daga í staðinn, en dómarinn neitaði því og dæmdi hana í fangelsi í sex tíma.

„Maðurinn minn er í skóla auk þess að vinna. Ég er að vinna líka og við eigum bara einn bíl. Við reyndum okkar besta,“ segir Karen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×