Þóttist vera í dái í tvö ár til að forðast lögsókn Samúel Karl Ólason skrifar 23. október 2014 14:14 Umrædda mynd fann lögreglan í Wales af Alan Knight gangandi um Tesco. Vísir/AP
Breskur maður játaði í vikunni að hafa svikið aldraðan nágranna sinn um 40 þúsund pund og að hafa þóst vera í dái í tvö ár til að forðast lögsókn. Eiginkona Alan Knight hafði í tvö ár haldið því fram að hann væri lamaður og í dái. Þar til lögreglan fann myndbandsupptöku af honum og konu sinni gangandi um Tesco verslun. Hann hafði stolið 40 þúsund pundum eða tæpum 8 milljónum króna af reikningi nágranna síns sem var með alzheimer. Þegar lögreglan hóf rannsókn sína þóttist Alan vera lamaður og í dái eftir að hafa hlotið alvarlega hálsáverka. „Við höfum gengið í gegnum helvíti og erum enn að ganga í gegnum helvíti,“ sagði Helen Knight, eiginkona hans, við fjölmiðla í Wales. Upp komst um svikin eftir að lögreglu varð kunnugt um að greiðslukort hans hafi verið notað í Tesco verslun. Þá fundu lögreglumenn öryggiskerfisupptökur af Alan gangandi um verslunina með konu sinni og keyrandi. Þá hafði réttarhöldum yfir Alan verið frestar tvisvar sinnum. Eftir að þeim hjónum var tilkynnt að nú yrði réttað yfir honum hvort sem hann mætti eða ekki, mætti Alan í dómsal í síðustu viku. Þá var hann í hjólastól og með hálskraga. Eftir að saksóknarar sýndu honum upptökur frá versluninni játaði hann á sig 19 ákæruliði. Eiginkona hans hefur þó ekki verið ákærð. Dómarinn sagði Alan vera einstaklega hæfileikaríkan og ákveðinn leikara og að þau einkenni sem hann hefði leikið væru ekki til staðar. Á vef BBC má sjá myndir af Alan sem hann og kona hans tóku, sem áttu að sanna að Alan væri í dái.
Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Erlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Erlent Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Erlent Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Erlent Tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar Innlent „Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“ Innlent Ingólfur leysir Baldur af Innlent Fleiri fréttir Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Sjá meira