Erlent

Reyna að lokka presta til norðurhluta Noregs

Atli Ísleifsson skrifar
Þriðjungur presta í norðurhluta Noregs eru orðnir sextugir og komast brátt á aldur.
Þriðjungur presta í norðurhluta Noregs eru orðnir sextugir og komast brátt á aldur. Vísir/AFP
Fjórtán prestsstöður eru nú auglýstar til umsóknar í Tromsø og Finnmörku í Noregi og eru íbúar margir orðnir óþreyjufullir eftir að menn verði skipaðir í stöðurnar. Stöðurnar hafa sumar verið auglýstar lausartil umsóknar í rúmt ár og víða hafa engar umsóknir borist.

Í frétt norska ríkisútvarpsins er rætt við Sigurð Hansen, 77 ára gamlan prest í Tranøy, en prestsembætti sem hann skipar nú er eitt þeirra sem er auglýst laust til umsóknar, enda Hansen löngu kominn á aldur.

„Ég finn sterklega fyrir kallinu að vera prestur,“ segir Hansen. „Það er ekki skyldan sem kallar, heldur löngun sem fær mig til að þjónusta kirkjuna mína. Þegar fólk vill nota kirkjuna, þá veitir það mér mikla gleði að bjóða fram þjónustu mína.“

Nokkur embættin sem hafa margoft verið auglýst en borið hefur á litlum áhuga. Bjørn Hagen, starfsmannastjóri kirkjunnar í Tromsø, segir að eftir nokkur tiltölulega góð ár þá hafi þeir nú siglt inn í tímabil þar sem lítið er um framboð á prestum.

Hagen segir að of fáir mennti sig nú til prests í Noregi. „Í norðri eru 30 prósent prestanna eldri en sextíu ára og þegar þeir komast á aldur eru engir til að fylla þeirra stöður.“

Í frétt NRK má sjá hvernig íbúar í norðurhluta Noregs hafa látið taka mynd af sér þar sem þeir biðla til presta að sækja um þau prestsembætti sem nú eru auglýst til umsóknar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×