Afhjúpuðu rasisma lögreglunnar Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 20. október 2014 14:52 Félagarnir fengu aðrar viðtökur þegar þeir voru komnir í hefðbundinn klæðnað múslima. Skjáskot úr myndbandinu
Félagsleg tilraun þeirra Adam Saleh og Sheikh Akbar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu en með meðfylgjandi myndbandi segjast þeir hafa sannað rasisma af hálfu lögreglunnar. Þeir telja sig hafa fengið sérstaka meðferð aðeins vegna þess að þeir voru klæddir í hefðbundinn klæðnað múslima. Í ummælum við myndbandið sem eru þegar orðin tæplega 3700 aðeins degi eftir að myndbandið var sett á netið má sjá marga reiðast vegna þess hvernig lögreglan kemur fram við mennina á meðan aðrir reyna að réttlæta aðgerðir lögreglunnar. Félagarnir Adam Saleh og Sheikh Akbar eru vinsælir á Youtube þar sem þeir ganga undir nafninu TrueStoryASA. Við gerð myndbanda sinna þótti þeim áberandi hversu ólíkt viðmót lögreglunnar var gagnvart þeim þegar þeir klæddust klæðnaði úr heimalandi sínu. Þeir ákváðu því að framkvæma félagslega tilraun og sýna fram á það í eitt skipti fyrir öll að lögregla kemur öðruvísi fram við þá sem klæðast ákveðnum fötum eða eru með ákveðið útlit. Í myndbandinu sést hvernig vinirnir tveir, klæddir í gallabuxur og stuttermaboli, rífast og ýta við hver öðrum beint fyrir framan nefið á lögreglumanni sem stendur hjá. Lögreglumaðurinn grípur ekki til neinna aðgerða né segir nokkuð við mennina þrátt fyrir að það líti út fyrir að stutt sé í slagsmál. Tuttugu mínútum síðar koma þeir aftur, nú íklæddir kyrtlum frá heimalandinu. Þeir hefja sama rifrildi en nú bregst lögreglumaðurinn ókvæða við og spyr hvað sé í gangi. „Af hverju eruð þið að rífast? Af hverju eruð þið klæddir svona?“ spyr lögreglumaðurinn og lætur annan mannanna standa upp við vegg þar sem hann þreifar á honum og spyr hvort hann sé vopnaður. Myndbandið má sjá hér að ofan og er sjón sögu ríkari. „Of margir saklausir einstaklingar eru stoppaðir og leitað á þeim á hverjum degi vegna þess hvernig þeir klæða sig eða vegna þess að þeir hafa ákveðinn húðlit,“ segja mennirnir á Youtube. Þeir segjast á móti slíkum steríótýpum og að þeir voni að sem flestir breiði út þann boðskap að tekin sé afstaða gegn slíku.
Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Sjá meira