Ebóluveiran klassískt „fóður“ fyrir þá sem smíða samsæriskenningar Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 20. október 2014 16:02 Ýmsar samsæriskenningar varðandi ebólu hafa sprottið upp seinustu misserin eftir því sem veiran hefur breiðst meira út. Vísir/Getty
Útbreiðsla ebóluveirunnar um heiminn hefur vart farið framhjá neinum. Eins og gjarnan vill verða í umræðunni hafa sprottið upp hinar ýmsu samsæriskenningar varðandi faraldurinn. New York Times fjallaði um nokkrar þeirra um helgina. Á meðal þeirra sem hafa tjáð sig um veiruna er söngvarinn Chris Brown. Hann sagði á Twitter að hann teldi ebólu vera leið til að stjórna fólksfjölgun. Það er einmitt í takti við það sem líberíska dagblaðið Daily Observer hélt fram í september síðastliðnum. Blaðið birti þá grein þar sem því var haldið fram að ebóluveiran væri í raun efnavopn, runnið undan rifjum Bandaríkjanna, til að fækka íbúum jarðar. Þá hafa íhaldssamir Bandaríkjamenn, á borð við útvarpsþáttastjórnendurna Rush Limbaugh og Lauru Ingraham, haldið því fram að Barack Obama hafi sent hjálparlið til Afríku þar sem hann finni til svo mikillar sektarkenndar vegna þrælahalds og nýlendustefnu Vesturveldanna á sínum tíma. Með því að senda hjálparlið til landa þar sem ebóla hefur breiðst út sé Obama vísvitandi að stofna lífi Bandaríkjamanna í hættu. Þá hefur sú saga einnig orðið lífseig að heilbrigðisstarfmenn og lyfjafyrirtæki vinni saman að því að breiða út, og síðan lækna sjúkdóminn, til að lyfjafyrirtækin græði sem mest. Þó að það hljómi afar fjarstæðukennt þá segir lagaprófessorinn Mark Fenster kenninguna þess eðlis að okkur gæti þótt hún trúanleg. „Það er staðreynd að við reiðum okkur á einkafyrirtæki sem þróa og framleiða lyf. Okkur finnst það kannski ekkert sérstakt, en vegna þessa finnst okkur ekkert svo erfitt að ímynda okkur að lyfjafyrirtækin vinni fyrst og fremst í sína þágu,“ segir Fenster í samtali við New York Times. Michael Barkun, prófessor í stjórnmálafræði, segir að samsæriskenningar þurfi ekki að vera sannar til að kenna okkur um sitthvað um okkur sjálf. Barkun segir að samsæriskenningar séu ákveðin leið sem fólk notar til að tjá kvíða og áhyggjur. Að mati fræðimanna er ebóluveiran klassískt „fóður“ fyrir þá sem smíða samsæriskenningar: ólæknanlegur sjúkdómur sem dregur fólk hratt til dauða.I don't know ... But I think this Ebola epidemic is a form of population control. Shit is getting crazy bruh.— Chris Brown (@chrisbrown) October 13, 2014
Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Erlent Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Erlent „Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“ Innlent Ingólfur leysir Baldur af Innlent Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Erlent Laga þurfi fegurðarskynið að orkuskiptum Innlent „Að bilast“ yfir útlensku í almannarými Innlent Fleiri fréttir Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Sjá meira