Hita- og þurrkatíð eykur eldhættuna 8. janúar 2013 08:00 Julia Gillard, forsætisráðherra Ástralíu, heimsótti Tasmaníu í gær og skoðaði svæði sem hart eru leikin af kjarreldum. Hér er hún í brunarústum Dunally-barnaskólans í suðausturhluta Tasmaníu. Á suðurhluta eyjunnar hafa yfir hundrað heimili orðið eldinum að bráð. Nordicphotos/AFP
Stjórnvöld í Ástralíu óttast fleiri kjarrelda víðar í landinu. Í suðurhluta landsins var í dag spáð roki og allt að 43 stiga hita. Á eynni Tasmaníu hafa yfir hundrað heimili og byggingar orðið eldi að bráð. Í gær var hundrað manns enn saknað. Leitað var látinna í brunarústum yfir hundrað heimila og bygginga eftir þriggja daga kjarrelda á eynni Tasmaníu, sem er eitt héraða Ástralíu. Hundrað manns var enn saknað í gær. Þó nokkrir eldar hafa sprottið upp á sól- og vindþurrkuðum svæðum suðausturhluta Ástralíu. Sjálfboðaliði sem barðist við kjarrelda nærri þorpinu Gundaroo, um 220 kílómetra suðvestur af Sydney, varð í gær fyrir alvarlegum bruna á höndum og í andliti, að því er fram kemur í yfirlýsingu sem slökkvilið Nýja Suður-Wales fyrir dreifðari byggðir sendi frá sér. Maðurinn var sendur í sjúkraflugi á spítala í Sydney. Scott Tilyard, starfandi lögreglustjóri í Tasmaníu, sagði í gær engar fregnir af því að fólk hefði látið lífið í héraðinu af völdum eldanna. Það myndi hins vegar taka einhvern tíma að ganga úr skugga um það. Síðan á föstudag hafa kjarreldar eyðilagt 20 þúsund hektara skóga og ræktarlands í suðurhluta Tasmaníu. Tilyard segir ellefu leitarhópa svipast um eftir þeim hundrað íbúum eða svo sem enn er saknað. Meðal annars er leitað í smábænum Dunalley, austur af héraðshöfuðborginni Hobart. Þar hafa um 90 heimili eyðilagst. „Þar til við höfum náð að ljúka allri leit á svæðinu getum við ekkert fullyrt um það hvort allir hafi komist af,“ sagði Tilyard við blaðamenn. Í gær geisuðu enn kjarreldar á þremur stöðum í suðurhluta Tasmaníu og í norðvesturhlutanum. Lögregla hefur kært rúmlega þrítugan mann fyrir að hafa orðið valdur af einum brunanna með því að hafa fyrir helgi látið varðeld eftirlitslausan. Nafn mannsins var ekki gefið upp og óljóst hvaða refsing kann að bíða hans, verði hann fundinn sekur. Julia Gillard, forsætisráðherra Ástralíu, sem flaug til Tasmaníu í gær, varaði við því að hitastig færi mjög hækkandi í Nýja Suður-Wales í dag, fjölmennasta héraði Ástralíu, og því væri mikil hætta á kjarreldum. „Við búum í landi sem er heitt og þurrt og verður reglulega fyrir skemmdum af miklum kjarreldum sem ganga yfir,“ sagði hún við blaðamenn. „Og þótt ekki sé hægt að kenna loftslagsbreytingum um einhvern ákveðinn atburð[…]vitum við þó að vegna loftslagsbreytinga eigum við eftir að sjá meiri öfga í veðurfari og aðstæðum.“ Shane Fitzsimmons, slökkviliðsstjóri slökkviliðs Nýja Suður-Wales fyrir dreifðari byggðir, sagði í gær að kjarreldar geisuðu á fleiri en 90 stöðum í héraðinu, þar með talinn eldurinn við Gundaroo. Hann varaði við því að aðstæður gætu versnað í dag. Engin heimili væru þó enn í hættu. Gert er ráð fyrir að hitastig í héraðinu nái allt að 45 gráðum á Celsíus í dag og vindstyrkur gæti náð yfir 22 metrum á sekúndu. Kjarreldar eru algengir að sumarlagi í Ástralíu. Í febrúar 2009 urðu hundruð elda sem geisuðu í Viktoríuhéraði 173 að bana og eyðilögðu yfir tvö þúsund heimili. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Fleiri fréttir Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Sjá meira