Lífið

Sigga Lund: Viðbrögðin hafa verið ótrúleg

Ellý Ármanns skrifar
Myndir/Aðalsteinn Sigurðarson.
Í kvöld í Salnum Kópavogi er námskeiðið "Sjálfstraust óháð likamsþyngd. Líkamsvirðing - sjálfsvirðing; Frá átökum og öfgum yfir í vellíðan, virðingu og sátt" sem Sigga Lund fjölmiðlakona, Anna Sigurðardóttir sálfræðingur

Anna Sigurðardóttir Dale Carnegie þjálfari, Bryndís Einarsdóttir sálfræðingur

Heiðdís Sigurðardóttir sálfræðingur og Hólmfríður Guðmundsdóttir eigandi fataverslunarinnar Curvy standa fyrir.

Hvernig hafa viðbrögðin verið við myndbirtingunni og námskeiðinu? "Viðbrögðin hafa verið ótrúleg. Ég hef ekki lengur tölu á þeim bréfum sem ég hef fengið frá aðallega konum þó svo nokkrir menn hafi sent mér póst líka þar sem þær lýsa þakklæti fyrir framtakið og segja mér frá hvernig þeirra líf hefur verið og er rauði þráðurinn að þær segja mig lýsa sínu lífi þegar ég hef sagt frá minni reynslu af fangelsi aukakílóanna," svarar Sigga.

Meðfylgjandi myndir voru teknar við undirbúning námskeiðsins.
"Undirbúningurinn að verkefninu hefur verið æðislegur. Það er bara heiður að hafa fengið að vinna með öllum þessum frábæru konum sem kunna fag sitt svo vel. Ég er svakalega spennt að heyra í þeim í kvöld. Það verður engin svikin.

"Ég finn samt fyrst og fremst fyrir þakklæti og hvatningu frá öllum það er ótrúlegt. Það er greinilegt að það er mikil þörf að á að opna þessa umræðu enn frekar. Það eru allt of margir sem lifa í þessu stanslausa niðurbroti í lífi sínu. Það er komin tími til að leggja það að baki, finna sáttina og fara að lifa og njóta. Það er alger must."

Hér getur þú skráð þig á námskeiðið - Midi.is.


Tengdar fréttir

Sigga Lund spæld á Valentínusardaginn

Það voru heldur betur vonbrigði hjá Siggu Lund í dag þegar henni barst risastór blómvöndur. Eins og hún skrifar á Facebooksíðuna sína þá fór sendillinn...

Sigga Lund situr fyrir nakin

"Ég var frekar stressuð að byrja. Hef aldrei gert þetta áður," svarar Sigga Lund fjölmiðlakona spurð hvernig henni leið að sitja fyrir kviknakin eins og sjá má á meðfylgjandi mynd eða öllu heldur auglýsingu örnámskeiðs á hennar vegum sem ber yfirskriftina "Sjálfstraust óháð likamsþyngd. Líkamsvirðing - sjálfsvirðing; Frá átökum og öfgum yfir í vellíðan, virðingu og sátt". "En svo var þetta bara allt í lagi. Það hjálpaði að ljósmyndarinn er kærasti minn. Aðstoðarkonan og hann sköpuðu afslappað andrúmsloft svo ég slakaði á. Þetta var ekkert mál fyrir rest," segir hún spennt en örnámskeiðið sem Sigga vinnur í samvinnu við sálfræðinga og fagaðila fer fram í Salnum í Kópavogi 19. febrúar næstkomandi.

Sigga Lund talar um nektarmyndina

"Þegar kom að þessu þá fór hjartað að slá örar og ég tala nú ekki um þegar við þurftum að strippa fyrir framan hvor aðra og ljósmyndarann," segir Sigga Lund í meðfylgjandi myndskeiði...






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.