Með forræðið þrátt fyrir morð 4. janúar 2013 08:00 Mæður 179 barna í svíþjóð hafa verið myrtar frá Árinu 2000.
Alls hafa mæður 179 barna í Svíþjóð verið myrtar frá því árið 2000. Feður 126 þessara barna hafa verið þeir sem myrtu mæðurnar. Þetta er niðurstaða úttektar sænska blaðsins Aftonbladet á morðum og drápum á konum. Sérstök rannsókn á aðstæðum 54 barna leiddi í ljós að í fjórum tilfellum af hverjum 10 eru feðurnir enn með forræði yfir börnunum. Í mörgum tilfellum geta feður sem banað hafa mæðrum barna sinna stýrt lífi barnanna frá fangelsinu og meðal annars gert athugasemdir við val á fósturheimili eða lyfjameðferð vegna veikinda barnanna. Feður geta einnig neitað að skrifa undir umsókn um vegabréf. Í einu tilfellanna neyddist drengur sem varð vitni að morðinu á móður sinni til að gista hjá föður sínum í fangelsinu í mörg ár. Það var ekki fyrr en nýr starfsmaður hins opinbera fékk mál drengsins í sínar hendur sem heimsóknirnar voru lagðar af. Í ljós kom að drengurinn hafði verið logandi hræddur við föður sinn. Börnin sjálf eru ekki alltaf spurð að því hvað þau vilja og hverjar þarfir þeirra eru. Rannsókn Aftonbladet leiddi í ljós að mörgum þeirra finnst þau vera svikin og yfirgefin. Af þessum 126 börnum voru 63 heima þegar feðurnir myrtu mæðurnar, 33 sáu þegar mæðurnar voru myrtar og að minnsta kosti sjö komu að mæðrum sínum látnum. Í raun misstu börnin báða foreldra sína því að feðurnir voru fangelsaðir eða frömdu sjálfsmorð. Að minnsta kosti 201 kona í Svíþjóð hefur verið myrt af sambýlismanni eða fyrrverandi sambýlismanni frá árinu 2000. Alls hafa 179 börn í Svíþjóð misst móður sína vegna þessa
Mest lesið Aron Can heill á húfi Innlent Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Erlent Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Erlent Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Innlent Hneig niður vegna flogakasts Innlent Hundurinn gerði vart um mann sem stóð og starði inn Innlent Lögreglan leitar tveggja manna Innlent Amgen sver af sér njósnir um starfsfólk Íslenskrar erfðagreiningar Innlent Ólíðandi að fá sektir aftur og aftur Innlent Óánægja með stjórnarandstöðuna eykst hressilega Innlent Fleiri fréttir Ísraelsþing ályktar um innlimun Vesturbakkans Jeremy Corbyn leiðir nýja stjórnmálahreyfingu Þrýstingur eykst á Starmer að hann fari sömu leið og Frakkar Samninganefndir ræða fund leiðtoganna Karlmaður á fertugsaldri handtekinn fyrir sprengjuhótunina Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Frakkland viðurkennir Palestínu sem sjálfstætt ríki Hjálparstarf og fréttaflutningur í uppnámi vegna hungursneyðar Alls 81 barn látist úr hungri Maxwell boðuð á fund með fulltrúum Trump-stjórnarinnar Columbia greiðir tvö hundruð milljóna dala sáttagreiðslu Selenskí dregur í land Danskri sjónvarpsstöð barst sprengjuhótun Heitir bótum en stendur við lögin umdeildu Rússnesk farþegaflugvél hrapaði og á fimmta tug talinn af Níu látnir er landamæradeilur blossa upp Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Hvalavinurinn ekki lengur eftirlýstur Ríki mega kæra hvert annað fyrir loftslagsbreytingar Epstein mætti í brúðkaup Trumps Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Norskur maður ákærður fyrir njósnir í þágu Rússa og Írana Abrahamska dulspekitrúin sem heyr tilvistarstríð Setjast enn og aftur við samningaborðið en væntingar eru litlar Biden hraunar yfir Clooney: „Hann má fokka sér“ Segjast hafa fengið rangar líkamsleifar Efnt til mótmæla í Úkraínu vegna umdeildrar lagabreytingar Sjá meira