Olli uppnámi og skelfingu Guðsteinn Bjarnason skrifar 16. febrúar 2013 06:00 Loftsteinninn lenti á endanum í ísilögðu stöðuvatni. nordicphotos/AFP
Vísindamenn telja að loftsteinninn, sem splundraðist yfir Rússlandi í gær, hafi verið tíu tonn að þyngd. Brotunum rigndi yfir íbúa við Úralfjöllin, ollu sprengingum og eignatjóni. Hátt í þúsund manns þurftu að leita sér læknisaðstoðar. „Það varð uppi fótur og fit. Enginn vissi hvað var að gerast. Allir fóru á milli húsa til að athuga hvort allt væri í lagi með fólk,“ sagði Sergei Hametov, íbúi í Tsjeljabinsk, stærstu borginni á því svæði sem varð fyrir loftsteinaregninu. „Við sáum skyndilega mikið ljós og fórum út til að kanna hvað væri að gerast. Þá heyrðum við mjög háværar sprengidrunur.“? Loftsteinninn er talinn hafa nálgast jörðu á miklum hraða, á um 54 þúsund kílómetrum á klukkustund. Hann splundraðist í 30 til 50 kílómetra hæð yfir jörðu og dreifðust brot úr honum yfir mjög stórt svæði. Miklar sprengingar urðu til þess að víða brotnuðu rúður í gluggum. Stærsta brotið hafnaði á endanum í ísilögðu stöðuvatni skammt frá bænum Tsjebakúl. Nokkuð algengt er að loftsteinar komi inn í andrúmsloft jarðar. Oftast brenna þeir upp en sumir lenda á jörðinni í mismunandi mörgum pörtum. Það gerist nokkrum sinnum á ári, en aðeins á fimm til tíu ára fresti hafa þeir umtalsverð áhrif. Sjaldnast gerist það þó á byggðu bóli, þannig að tjónið verður yfirleitt lítið. Engin tengsl eru talin vera á milli loftsteinsins, sem splundraðist yfir Úralfjöllum, og 130 þúsund tonna smástirnis sem þaut fram hjá jörðu seint í gær í um það bil 28 þúsund kílómetra fjarlægð. Engin skráð dæmi eru um að smástirni af þessari stærð hafi farið þetta nálægt jörðu. Rússneski þingmaðurinn Vladimír Sjírínovskí, sá kokhrausti þjóðernissinni, kom reyndar auga á aðra hlið á loftsteinaregninu en flestir aðrir: „Þetta eru ekki loftsteinar að falla, heldur eru Bandaríkjamenn að gera tilraun með nýtt vopn.“
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Sjá meira