Erlent

Þriðjungur á ekkert sparifé

Meira en helmingur Spánverja og Ítala hefur þurft að ganga á sparifé sitt til að lifa af.nordicphotos/AFP
Meira en helmingur Spánverja og Ítala hefur þurft að ganga á sparifé sitt til að lifa af.nordicphotos/AFP
Nærri þriðjungur íbúa Evrópuríkja á ekki sparifé að grípa til, samkvæmt þýskri könnun sem könnunarfyrirtækið TNS gerði fyrir þýska bankann ING.

Verst standa Rúmenar, en nærri helmingur þeirra á ekkert sparifé. Best eru hins vegar íbúar í Lúxemborg staddir, því einungis ellefu prósent þeirra eiga ekkert sparifé.Könnunin var gerð í fjórtán Evrópuríkjum.

Að meðaltali segjast 49 prósent Evrópubúa eiga sparifé sem myndi duga þeim í þrjá mánuði yrðu þeir fyrir skyndilegu tekjutapi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×