Erlent

Sprenging í Mexíkóborg kostaði 25 manns lífið og 100 eru slasaðir

Að minnsta kosti 25 manns fórust og 100 slösuðust í mikilli sprengingu í háhýsi í Mexíkóborg þar sem höfuðstöðvar ríkisolíufélagsins Pemex eru til húsa.

Talið er að um 30 manns séu enn fastir í rústum hússins og mikil leit stendur yfir að þeim. Myndir af vettvangi sýna að brak úr sprengingunni dreifðist víða um nærliggjandi götur.

Aðstandendur þeirra sem enn er saknað hafa safnast saman fyrir utan rústirnar og bíða frekari frétta af leitinni.

Um er að ræða 54 hæða háhýsi og þar voru fleiri hundruð manns í vinnu þegar sprenging varð í gærdag. Ekki er vitað um orsakir þessarar sprengingar en rannsókn á henni er hafin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×