Erlent

Assange býður sig fram í þingkosningunum í Ástralíu

Julian Assange, stofnandi wikiLeaks, ætlar að bjóða sig fram í komandi þingkosningum í Ástralíu í haust.

Þetta hafa ástralskir fjölmiðlar eftir móður hans. Assange hefur áður lýst yfir áhuga sínum á að bjóða fram sérstakan wikileaks-flokk í kosningunum og mun nú vera að leita að meðframbjóðendum fyrir þann flokk.

Assange dvelst enn í sendiráði Ekvador í London. Hann hefur fengið pólitíkst hæli í Ekvador en bresk stjórnvöld meina honum að fara úr landi þar sem Svíar vilja fá hann framseldan til að yfirheyra hann vegna meintra kynferðisafbrota Assagne í Svíþjóð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×