Erlent

Síðasta Andrews systirin er látin

Síðasta eftirlifandi Andrews systirin er látin 94 ára að aldri. Hún lést á heimili sínu í Californiu í gær.

Patty Andrews var yngst þriggja systra en vinsældir söngkvennanna voru mestar á árunum 1940-1950 og þá ekki síst meðal hermanna í seinni heimstyrjöldinni.

Án efa var vinsælasta lagið þeirra Boogie Woogie Bugle Boy of Company B en Andrews tríóið seldi meira en 75 milljónir platna.

Systurnar þrjár, sem voru upprunalega frá Minnesota, sérhæfðu sig í því sem kallað var swing eða sveiflu og voru í samstarfi með ekki ómerkari mönnum en Glen Miller og Benny Goodman. Systurnar komu einnig fram í sextán kvikmyndum þar á meðal Road to Rio og Buck Privates.

La Verne Andrews dó úr krabbameini árið 1967 en Maxene Andrews eftir hjartaáfall árið 1995.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×