"Ég var sýknuð" Guðsteinn Bjarnason skrifar 25. janúar 2013 07:00 Florence Cassez ræddi við fjölmiðla í gær ásamt lögfræðingi sínum og Laurent Fabius, utanríkisráðherra Frakklands, sem er annar frá hægri á myndinni. nordicphotos/AFP „
Ég var sýknuð," sagði Florence Cassez, frönsk kona sem setið hefur sjö ár í fangelsi í Mexíkó grunuð um aðild að mannráni. „Ég þjáðist sem fórnarlamb í meira en sjö ár." Hún var látin laus eftir að hæstiréttur Mexíkó ógilti sextíu ára fangelsisdóm vegna alvarlegra galla á upphaflegu réttarhöldunum árið 2005. Henni var fagnað sem þjóðhetju í Frakklandi þegar hún kom þangað í gær. Laurent Fabius utanríkisráðherra tók á móti henni og í dag er búist við að hún hitti François Hollande forseta. Fórnarlömb mannránanna og aðstandendur þeirra í Mexíkó eru samt engan veginn sannfærð um sakleysi hennar. „Við borguðum lausnargjaldið, en þau drápu hann samt," segir Michelle Valadez, sem segir að glæpagengi undir forystu þáverandi kærasta Cassez hafi rænt manni sínum og haldið honum í gíslingu í þrjá mánuði. Cassez segist aðeins hafa búið á búgarði í Mexíkó með Israel Vallarta, hinum mexíkóska kærasta sínum, en ekkert vitað af því að gíslar væru hafðir þar í haldi. Réttarhöldum yfir Vallarta er ekki lokið og óvíst hvaða áhrif niðurstaða hæstaréttar í máli Cassez hefur á þau réttarhöld. Hæstiréttur taldi ljóst að við upphaflegu réttarhöldin hefði með margvíslegum hætti verið brotið á mannréttindum Cassez, auk þess sem formgallar væru á réttarhöldunum sjálfum. Meðal annars hefði lögregla farið með hana aftur á staðinn stuttu eftir að hún var handtekin í því skyni að sviðsetja handtökuna fyrir fjölmiðla. „Ef hún hefði verið afhent dómsyfirvöldum og fengið samstundis aðstoð frá ræðismanni þá hefði ekki verið hægt að gera þessa sviðsetningu, og þá hefði málið litið allt öðruvísi út," segir Arturo Zaldivar, dómari í hæstarétti. „Við munum aldrei komast að raun um hvort Florence er sek eða saklaus," segir Luiz GonzalezPlacencia, formaður mannréttindanefndar Mexíkóborgar. „En við vitum fyrir víst að ákveðnir einstaklingar hafa brotið gegn reglum um rétta málsmeðferð."
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Sjá meira