Þúsundir flýja Sýrland á hverjum degi 25. janúar 2013 14:20 Þúsundir flýja Jórdaníu á hverjum degi.
Á síðasta sólarhring er talið að 10 þúsund börn og fjölskyldur þeirra hafi flúið Sýrland yfir landamærin til Jórdaníu. Átök hafa harðnað í suðurhluta Sýrlands með þeim afleiðingum að næstum 20 þúsund flóttamenn hafa flúið til landamæranna. Í gærkvöldi komu næstum 3.500 manns í Zaatari flóttamannabúðirnar. Á hverjum klukkutíma koma allt að fimm rútur í búðirnar, flestar yfirfullar af örþreyttu og hræddu fólki sem flúið hefur heimili sín með þær fáu eigur sem það getur haldið á. „Fjöldi kvenna og barna flýja til að bjarga lífi sínu og hafa einungis meðferðis fötin sem þau klæðast. Margir ná ekki einu sinni að pakka nauðsynjum og koma allslausir í búðirnar þar sem þeir þurfa á hjálp okkar að halda," segir Saba Al Mobasat, verkefnastjóri Save the Children í Zaatari flóttamannabúðunum. „Það er ískalt og blautt og búðirnar eru nú þegar yfirfullar. Mörg barnanna sem koma eru skelfingu lostin, örþreytt og undir miklu andlegu álagi." Hitastig í flóttamannabúðunum fer niður í -4°C á nóttunni. Í næstu viku er spáð mikilli rigningu sem mun hafa áhrif á þá 50 þúsund flóttamenn sem eru í búðunum. „Þrátt fyrir að hjálparstarfsmenn geri sitt besta, er komið að þolmörkum og ástandið á eftir að versna til muna á næstu dögum, sérstaklega ef flóttamenn halda áfram að streyma yfir landamærin í jafn miklum mæli," segir Al Mobasat. Í tilkynningu frá Save the Children segir að samtökin séu í samvinnu við Sameinuðu þjóðirnar á staðnum og yfirvöld í Jórdaníu. Samtökin útvega flóttamönnunum mat, teppi og vetrarföt allan sólarhringinn og veita börnum sem hafa orðið vitni að grimmilegum árásum í Sýrlandi einnig faglegan og tilfinningalegan stuðning. Save the Children veita sýrlenskum börnum lífsnauðsynlega hjálp í Jórdaníu, Líbanon og Írak og hafa nú þegar náð til næstum 130 þúsund flóttamanna á svæðinu. Til að styrkja starf Save the Children í Sýrlandi er hægt að leggja inn á reikning Barnaheilla – Save the Children á Íslandi 0327 - 26 – 001989 kt. 5210891059 eða með því að hringja í söfnunarsímana 904 1900 (1.900 kr.) og 904 2900 (2.900 kr.).
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Sjá meira