Fótbolti

Völlurinn við fjallsrætur Alpanna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vallarstæðið hjá SV Grödig.
Vallarstæðið hjá SV Grödig.
Heimavöllur SV Grödig, liðs Hannesar Þ. Sigurðssonar, er óvenjulegur, sérstaklega miðað við atvinnufélag í sterkri deild í Evrópu. Hann tekur aðeins rúmlega fjögur þúsund manns í sæti og er því sá leikvangur í austurrísku úrvalsdeildinni sem tekur langfæsta áhorfendur.

Áhorfendastúkan er aðeins við aðra hlið vallarins en Untersberg-fjallið, sem völlurinn heitir eftir, blasir við áhorfendum og leikmönnum. „Það væri algjör glæpur að setja stúku við þá hlið vallarins – ekki nema að hún væri gegnsæ,“ segir Hannes Þ. Sigurðsson, leikmaður Grödig, í léttum dúr.

„Það er hreint magnað að spila á þessum velli.“

Það er þó sjaldan uppselt á heimaleiki félagsins, sérstaklega nú á vetrarmánuðunum. Yfirleitt eru 1-2 þúsund manns á vellinum.

„Það er kannski ekki skrítið, miðað við sögu félagsins. Fyrir aðeins nokkrum árum var engin stúka á vellinum, aðeins bekkir. Það hefur því mikið breyst á skömmum tíma,“ bætir Hannes við en SV Grödig er að spila í efstu deild í Austurríki í fyrsta sinn og fyrir einungis tíu árum lék liðið í neðstu deild austurrísku knattspyrnunnar.

Grödig er við rætur Untersberg-fjallið í grennd við Salzburg og er steinsnar frá þýsku landamærunum.


Tengdar fréttir

Sagðist í fyrstu vera fórnarlamb

Dominique Taboga er 31 árs gamall Vínarbúi sem hefur spilað í heimalandinu allan sinn feril. Honum er gefið að sök að hafa reynt að hagræða úrslitum leikja með SV Grödig í austurrísku úrvalsdeildinni.

„Þetta var mikið áfall fyrir okkur alla“

Hannes Þorsteinn Sigurðsson tekur nú þátt í austurrísku ævintýri með nýliðum SV Grödig í úrvalsdeildinni þar í landi. Veðmálahneyksli skók þó félagið á dögunum og þurftu tveir leikmenn að víkja vegna þess.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×