Erlent

Fyrirfara sér að lokinni herþjónustu

Freyr Bjarnason skrifar
Fjórir kanadískir hermenn sem störfuðu í Afganistan hafa framið sjálfsvíg á síðustu tveimur vikum.
Fjórir kanadískir hermenn sem störfuðu í Afganistan hafa framið sjálfsvíg á síðustu tveimur vikum. Mynd/AP
Fjórir kanadískir hermenn hafa framið sjálfsvíg á undanförnum tveimur vikum.

Sá síðasti sem það gerði var Sylvain Lelievre, 46 ára, sem fannst látinn í herstöð skammt frá borginni Quebec á mánudaginn. Hann hafði starfað bæði í Afganistan og í Bosníu á tæplega þrjátíu ára ferli sínum.

Fyrir vikið hafa vaknað upp spurningar um það hvort kanadísk stjórnvöld veiti fyrrverandi hermönnum í Afganistan nægilegan stuðning hvað geðheilbrigði varðar.

Áður en Lelievre framdi sjálfvíg var kanadíski herinn þegar að rannsaka sjálfvíg þriggja annarra hermanna sem störfuðu í Afganistan, eða þeirra Michael McNeil, William Elliot og Travis Halmrast. Sá síðastnefndi hafði verið í fangelsi eftir að hafa verið ákærður vegna heimilisofbeldis.

Samkvæmt þjóðaröryggisstofnun Kanada hafa hátt í fimmtíu hermenn framið sjálfsvíg á árunum 2010 til 2012, að því er sagði í frétt The Guardian. Í framhaldinu sendi kanadíski herinn frá sér myndband þar sem hermenn voru hvattir til að leita sér aðstoðar. Á kanadíska þinginu sökuðu þingmenn stjórnarandstöðunnar ríkisstjórnina um skort á umhyggju og spurðu hvort einhverjar aðgerðir væru í burðarliðnum varðandi dauðsföllin sem ættu sér „engin fordæmi“. Forsætisráðherrann Stephen Harper sagði fyrr í vikunni að stuðningurinn væri til staðar og að séð yrði til þess að hann yrði það áfram.

Þegar hæst lét voru kanadískir hermenn í Afganistan þrjú þúsund talsins. Þeim var fækkað árið 2011 en Kanada mun aðstoða við heræfingar í landinu fram á næsta ár.

Reynsla Kanadamanna af sjálfsvígum hermanna er svipuð og í Bandaríkjunum og Bretlandi. Þar hafa yfirmenn hersins verið varaðir við aukinni tíðni áfallastreituröskunnar, sem algengt er að hermenn greinist með.

Sjúkdómurinn tekur að meðtali ellefu ár að ná bólfestu í mönnum og er búist við auknum fjölda tilfella á næstu árum vegna þeirra sem tóku þátt í stríðinu í Írak og í Afganistan á síðasta áratugi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×