Fótbolti

Loksins eru allir leikmenn í toppstandi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
mynd KSÍ
„Staðan á hópnum er mjög góð. Þær eru allar heilar og engin veik eða slöpp. Allir í toppstandi. Það er mjög jákvætt,“ sagði landsliðsþjálfarinn Freyr Alexandersson í samtali við Fréttablaðið í gær.

Kvennalandsliðið mætir Serbum ytra í dag í undankeppni heimsmeistaramótsins 2015. Sif Atladóttur var sárt saknað í 2-0 tapinu gegn Sviss og þá fór Margrét Lára Viðarsdóttir meidd af velli í leik með Kristianstad á dögunum. Freyr segir þær hafa æft af kappi líkt og aðrir leikmenn og séu klárar.

Okkar stelpur hafa verið við æfingar ytra í vikunni og hafa haft nóg fyrir stafni enda margt sem þarf að ræða og gera.

„Við gerðum upp leikinn gegn Sviss á mánudaginn og fórum yfir hvað við lærðum af því verkefni,“ segir Freyr um tapið á Laugardalsvelli í fyrsta leik Íslands í riðlinum. Síðan hafi verið unnið í sóknarleiknum enda markmiðið að halda boltanum betur en tókst gegn Sviss.

„Við viljum geta fært leikmenn ofar á völlinn og í betri stöður,“ segir Freyr en einnig hefur umræða um hugarfar og hvert íslenska liðið stefni verið á verkefnalistanum í Serbíu. Freyr er ánægður með viðbrögð leikmanna.

„Það eru allir mjög einbeittir og gera sér grein fyrir því sem gengið hefur á síðasta árið hvað úrslit varðar. Allir vilja taka þátt í því að byrja upp á nýtt,“ segir Freyr. Þjálfarinn hélt utan til Serbíu fyrir liðna helgi ásamt Ásmundi Haraldsson, nýráðnum aðstoðarmanni sínum. Sáu þeir viðureign Serba og Dana sem lauk með 1-1 jafntefli. Óhætt er að segja að úrslitin hafi verið óvænt en Serbar höfðu áður tapað 9-0 fyrir Sviss.

„Þær eru vel skipulagðar og hafa lagað það síðan í leiknum við Sviss,“ segir Freyr um andstæðinginn. Ýmislegt kom á óvart í uppstillingu Serba. Þannig lék stjörnuframherjinn Jovana Damnjanovi, sem spilar með Evrópumeisturum Wolfsburg, í stöðu vinstri bakvarðar. Vesna Smiljkovi, leikmaður ÍBV, bar fyrirliðabandið og lék í stöðu hægri bakvarðar. Vesna spilar sömuleiðis allajafna framar á vellinum.

„Þær vilja vera með sóknarsinnaða bakverði. Þær spila aftarlega og loka svæðum en eru eldfljótar fram þegar þær sækja,“ segir Freyr. Danka Podovac, miðjumaður Stjörnunnar, er í lykilhlutverki á miðjunni og á að stjórna spili liðsins.

Heitt hefur verið í veðri í Serbíu. Um 25 stig í upphafi vikunnar, var um 20 stig í gær og reiknað er með um 15 stiga hita í dag. Spilað verður á FK Obilic-leikvanginum í Belgrad þar sem stelpurnar okkar æfðu í gær.

„Völlurinn er sléttur en grjótharður. Ég óskaði eftir því að völlurinn yrði vökvaður og mýktur fyrir leik. Það verður að koma í ljós hvort þeir verða við þeirri ósk. Við vitum hins vegar hvernig völlurinn er og við bregðumst við því.“

Leikurinn í Serbíu hefst klukkan 13 og verður fylgst með gangi mála á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×