Berlusconi vonast til að fá kosningar Guðsteinn Bjarnason skrifar 30. september 2013 07:00 Fjölmiðlar á Ítalíu brugðust ókvæða við og segja Berlusconi snarruglaðan. Mynd/AP
Ítalskir fjölmiðlar segja Silvio Berlusconi „snarruglaðan“ að hafa dregið fimm ráðherra sína út úr ríkisstjórn Enricos Lettos forsætisráðherra. Ríkisstjórnin er nú í uppnámi, en Ítalía má illa við slíkri óvissu þegar glíma þarf við brýnan efnahagsvanda. Þar með verður Beppo Grillo, skemmtikrafturinn sem vann mikinn sigur í síðustu kosningum, lykilstöðu í ítölskum stjórnmálum enn á ný, því vart yrði hægt að mynda nýja stjórn án þess að flokkur hans tæki þátt. Berlusconi virðist hins vegar hafa ákveðið að hætta stjórnarsamstarfinu í von um að efnt verði til þingkosninga sem allra fyrst. Ekki er þó víst að honum verði kápan úr því klæðinu, því þrír af fimm ráðherrum flokksins hafa gefið í skyn að hugsanlega muni þeir halda áfram að styðja stjórn Lettos, þrátt fyrir að gegna ekki lengur ráðherraembætti. Einn þeirra sagðist ætla að meta stöðuna eftir að Letta flytur ræðu á þingi síðar í vikunni, en að ræðunni lokinni má búast við að greidd verði atkvæði um vantraust til stjórnarinnar. Tveir aðrir segjast síðan ósáttir við að hafa þurft að segja sig úr stjórninni, og því ekki ljóst hvað þeir munu gera í framhaldinu. Tilefni brotthvarfs ráðherranna úr stjórninni er væntanlegt bann við frekari setu Berlusconis sjálfs á ítalska þinginu. Dómstólar hafa dæmt hann í fangelsi og fjögurra ára bann við því að gegna opinberu embætti, þar á meðal þingsetu.
Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Innlent Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Innlent Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Erlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Fleiri fréttir Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Sjá meira