Sóttu helst í gögn frá stofnunum 16. janúar 2013 07:00
Net tölvuþrjóta hefur síðustu fimm árin sótt sér mikið magn af trúnaðargögnum frá ríkisstjórnum, alþjóðlegum stofnunum og rannsóknarstofnunum með tölvuóværu sem kallast Rauði október. Tölvuöryggisfyrirtækið Kaspersky leiðir þetta í ljós í nýrri skýrslu. Samkvæmt skýrslunni hefur Rauði október herjað á tölvur, farsíma og spjaldtölvur, og gerir enn. Óværunni er dreift í gegnum viðhengi í tölvupósti. Komist hún í gegn til eins notanda, í formi svokallaðs Trójuhests, nær tölvuþrjóturinn stjórn á tækinu og getur sýkt önnur tæki á sama netkerfi. Óværan gerði mestan óskunda í Austur-Evrópu og Mið-Asíu en hafði líka áhrif í Vestur-Evrópu. Mikill fjöldi skjala var afritaður úr tölvunum inn á vefþjóna sem staðsettir eru um allan heim. Tæknin á bak við Rauða október er afar fullkomin þannig að ekki er hægt að útiloka að ríki standi á bak við þessa herferð, sem hefur staðið í fimm ár, en Kaspersky hefur rannsakað málið frá október síðastliðnum. Af fyrirliggjandi gögnum að ráða er hins vegar talið líklegra en ekki að þrjótarnir séu rússneskumælandi. Samkvæmt skýrslunni hafa þrjótarnir mestan áhuga á gögnum frá stofnunum ESB, sem eru dulkóðuð. Þeir sýktu hundruð véla í alls um sjötíu löndum, meðal annars í Þýskalandi, Frakklandi, Belgíu, Bandaríkjunum, Rússlandi og Japan. Ísland er ekki í þeim hópi. Kaspersky mun halda rannsókninni áfram í samvinnu við alþjóðalöggæslustofnanir.- þj
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Sjá meira