Forsætisráðherra bregðist við íhlutun forsetans Gar skrifar 5. janúar 2013 08:00 Forseti Íslands sagðist í ríkisráði hafa hvatt „til samstöðu allra flokka“ í stjórnarskrármálinu.
Ríkisútvarpið sagði í gærkvöld að til fordæmalausra orðaskipta hefði komið á ríkisráðsfundi á gamlársdag eftir að Ólafur Ragnar Grímsson forseti lagði þar fram bókun um stjórnarskrármálið. Fullyrti RÚV að engar heimildir væru um að áður hafi komið til orðaskipta í ríkisráði. Í tillögum um breytta stjórnarskrá væri lagt til að ríkisráð yrði lagt niður. Bent var á að forsetinn hefði sagt í ávarpi á nýársdag að þá hyrfi vettvangur fyrir samráð þjóðhöfðingja og ríkisstjórnar. „Ég var ekki óánægður með það sem þar kom fram og fannst þar margt af skýrleika mælt. Á þessum fundi fór ekkert óeðlilegt fram sem ekki var fullkomlega í samræmi við leikreglur lýðræðisins,“ segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra spurður hvort þeir sem sátu ríkisráðsfundinn hafi verið óánægðir með það sem þar gerðist. „Ég tel að fundargerðir ríkisráðs eigi ekki að vera leyndarmál. Sú stofnun er þess eðlis, og sömuleiðis það sem þar fer fram, að það er engin þörf á því að hafa ekki fullkominn tærleika yfir fundargerðum hennar,“ bætir Össur við. Hvorki náðist í Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra né Steingrím J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra í gærkvöld til að fá þeirra sjónarmið. Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, segir í grein í Fréttablaðinu í dag að „íhlutun“ forsetans á ríkisráðsfundinum hafi verið „formbundin stjórnskipuleg athöfn en ekki orðagjálfur í ræðu“. Ríkisráðið sé réttur vettvangur fyrir forsetann í þessum efnum. „Rétt er að gera þá kröfu til forsætisráðherra að hann bregðist við íhlutun forsetans með málefnalegum sjónarmiðum í ríkisráðinu,“ skrifar Þorsteinn.
Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira