Bandaríska þingið frestaði vandanum Guðsteinn skrifar 3. janúar 2013 08:00 Varaforseti og forseti Bandaríkjanna hrósuðu skammtímasigri. nordicphotos/AFP
Barack Obama Bandaríkjaforseti fagnaði því á nýársdag að geta „undirritað lög sem hækka skatta á auðugustu tvö prósent Bandaríkjamanna og koma jafnframt í veg fyrir skattahækkanir sem hefðu getað sent efnahagslífið aftur í kreppu“. Báðar deildir Bandaríkjaþings samþykktu á síðustu stundu málamiðlunarfrumvarp, þar á meðal umdeildar skattahækkanir á auðkýfinga, þrátt fyrir að helstu leiðtogar repúblikana í fulltrúadeildinni væru andvígir því. Í öldungadeildinni féllu atkvæðin 89 á móti 8 en í fulltrúadeildinni 257 á móti 167. Málamiðlunarsamkomulagið setti hins vegar mörg erfiðustu deilumálin á frest, og munar þar mest um lögbundið skuldaþak ríkissjóðs, sem nú er 16,4 milljarðar dala, en þarf að hækka fyrir febrúarlok eigi ríkissjóður að geta mætt nauðsynlegum útgjöldum. „Ef þingið neitar að veita Bandaríkjastjórn heimild til að greiða þessa reikninga á réttum tíma þá yrðu afleiðingarnar fyrir efnahagslíf heimsins skelfilegar – miklu verri en áhrifin af fjárlagaþverhnípinu,“ sagði Obama. Obama dreif sig reyndar strax aftur til Havaí í gær til að ljúka þar jólafríi sínu, sem hann hafði gert hlé á milli jóla og nýárs til að ná samkomulagi áður en 600 milljarða dala skattahækkanir og ríflega 100 milljarða niðurskurður tækju sjálfkrafa gildi. Niðurskurði á útgjöldum, meðal annars til hermála, var frestað, og sömuleiðis var frestað um tvö ár að fella niður atvinnuleysisbætur til tveggja milljóna manna, sem hafa verið atvinnulausir til lengri tíma. Og þrátt fyrir fullyrðingar forsetans um að skattar hækki aðeins á hina launahæstu, sem eru með meira 400 þúsund dali í árstekjur, þá hækka skattar samkvæmt samkomulaginu í raun um tvö prósent á alla launþega. Nýtt þing kemur saman í Bandaríkjunum í dag og Barack Obama tekur síðan formlega við embætti forseta fyrir seinna kjörtímabil sitt þann 21. janúar. Meirihluti demókrata í öldungadeildinni jókst nokkuð, en þeir eru enn í minnihluta í fulltrúadeild.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Fleiri fréttir Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Sjá meira