Hægt að nýta fjarveru Gylfa til góðs Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. júní 2013 12:58 Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson. Mynd/Vilhelm
Lars Lagerbäck, þjálfari karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu, er bjartsýnn fyrir viðureign Íslands og Slóveníu í undankeppni HM 2014 á Laugardalsvelli á morgun. Svíinn sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag ásamt aðstoðarmanni sínum Heimi Hallgrímssyni og leikmönnunum Aroni Einari Gunnarssyni og Kolbeini Sigþórssyni. Að sögn Lagerbäck eru allir leikmenn liðsins klárir í slaginn. Aron Einar og Birkir Bjarnason hafi aðeins misst úr eina til tvær æfingar en þeir séu í góðu lagi. Hið sama gildi um aðra leikmenn. Þeir Heimir hafa komist að niðurstöðu um hvaða ellefu leikmenn byrji leikinn annað kvöld. Lagerbäck segir þá hafa neglt þá ákvörðun eftir æfingu liðsins í hádeginu. Sá sænski segist sífellt verða meira upp með sér hvað leikmenn íslenska liðsins varði. Þeir komi honum sífellt á óvart með frammistöðu sinni innan sem utan vallar. Lagerbäck hefur mestar áhyggjur af dómgæslunni á morgun, þ.e. að þýska dómaraþríeykið muni leyfa of mikla hörku. Þannig hafi Slóvenar komist upp með mjög harðan leik í 2-0 sigrinum á Tyrkjum í æfingaleik á dögunum. Hann reiknar með miklum baráttuleik. Aðspurður hvað þurfi að bæta frá leiknum í Slóveníu segir hann að menn þurfi að vera ákveðnari í föstum leikatriðum. Menn hafi staðsett sig rétt í fyrri leiknum en skort ákveðni. Aron Einar og Kolbeinn sögðu góða stemmningu í hópnum og ekki yfir neinu að kvarta. Þeir segja landsliðsmenn finna fyrir væntingum en fyrst og fremst setji þeir pressu á sig sjálfir. Þá lofaði Kolbeinn, á léttu nótunum, að nýta jafngóð færi og hann fékk í fyrri leiknum í Slóveníu. Gylfi Þór Sigurðsson verður í leikbanni á morgun. Lagerbäck segir að þótt Gylfa og hans hægri fótar verði saknað opni það á aðra möguleika fyrir landsliðið. Liðið geti bætt leik sinn á annan hátt í fjarveru spyrnusérfræðingsins. Blaðamannafundurinn var í beinni textalýsingu á Vísi og má sjá hana hér að neða.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Lyfti tvö hundruð kílóum tíu sinnum í röð Sport Jón Daði hættur í fótbolta: „Á endanum stend ég eftir með ekkert nema þakklæti“ Fótbolti Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Enski boltinn Sjóðheit Ída Marín kveður FH Íslenski boltinn Bjarni varð eftir í Svíþjóð og er á förum frá Val Fótbolti Valur - KA | Í fallbaráttu og þurfa sárlega á sigri að halda Íslenski boltinn Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Íslenski boltinn Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Enski boltinn Þingkonan hlaut EM-brons eftir mikla spennu Sport Skipti tennisskónum út fyrir takkaskó og skoraði tvö í fyrsta leik Fótbolti Fleiri fréttir Hársbreidd frá endurkomu gegn toppliðinu Fram - Stjarnan | Geta jafnað KR að stigum Pina nú verðmætasta knattspyrnukona heims Valur - KA | Í fallbaráttu og þurfa sárlega á sigri að halda Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Komust ekki inn á mótið en unnu svo titilinn Skipti tennisskónum út fyrir takkaskó og skoraði tvö í fyrsta leik Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Sjóðheit Ída Marín kveður FH Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Jón Daði hættur í fótbolta: „Á endanum stend ég eftir með ekkert nema þakklæti“ Bjarni varð eftir í Svíþjóð og er á förum frá Val Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Sveindís missti af prinsessuleiknum Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Messi skaut tvisvar í stöng á tveimur sekúndum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ „Langar bara að verða betri í fótbolta“ Helgi Guðjóns: Tökum eldgömlu klisjuna um einn leik í einu Uppgjörið: ÍBV - ÍA 1-3 | Með þrjú stig upp á fasta landið Uppgjörið: FH - Víkingur R. 2-4 | Fyrsta tap FH í áttatíu daga Uppgjörið: KR – Breiðablik 3-3 | Stig sem skilur lítið eftir sig Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Sjá meira