Leikmenn áttuðu sig á formleysi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. júní 2013 06:15 Sigurður Ragnar Eyjólfsson. Fréttablaðið/Anton
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu hefur jafnan staðið sig vel á árlegu æfingamóti á Algarve í mars. Í ár voru úrslitin óvenjuslæm og kvisaðist út óánægja leikmanna með þá ákvörðun landsliðsþjálfarans að láta leikmenn þreyta þrekpróf á leikdögum liðsins. Þjálfarinn, Sigurður Ragnar Eyjólfsson, segir að sér og aðstoðarmönnum sínum hafi fundist ákveðnir leikmenn í lélegu formi. Vissulega hafi leikmenn verið á undirbúningstímabilinu en samanburðurinn við marsmánuð árin á undan hafi verið slæmur. Um áhyggjuefni hafi verið að ræða enda stórmót framundan, lokakeppni Evrópumótsins í Svíþjóð. „Sumir leikmenn voru ekki sammála því," segir Sigurður Ragnar um skoðun þjálfaranna að form leikmanna væri verra en áður. Planið hafi verið að láta leikmenn spila með púlsklukkur í leikjunum á Algarve en öllum liðum hafi verið bannað að gera það. „Eina leiðin til að fá grun okkar staðfestan var að setja leikmenn í þolpróf," segir Sigurður. Þá hafi komið sér vel að hópurinn var stærri en nokkru sinni fyrr en 23 leikmenn fóru með liðinu til Algarve. „Þeir leikmenn sem byrjuðu inn á í leikjum sama dag fóru ekki í þolpróf þann daginn," segir landsliðsþjálfarinn. Niðurstöður prófanna hafi staðfest grun þjálfaranna. „Leikmennirnir sem við töldum ekki í nógu góðu formi komu illa út í prófinu," segir Sigurður. Síðan þá hafi verið unnið áfram með þolpróf og púls leikmanna skoðaður. „Leikmenn tóku þessu ekkert alltof vel úti á Algarve en þær áttuðu sig betur á stöðunni. Þær fengu svart á hvítu hvar þær stóðu. Síðan hefur form leikmanna almennt batnað."
Fótbolti Tengdar fréttir Kynslóðaskiptin fyrr en reiknað var með "Fókusinn hefur verið á það neikvæða. Einblínt hefur verið á úrslit leikja og þau mistök sem gerð hafa verið,“ segir Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari Íslands. 6. júní 2013 06:00 Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Fámáll um orðrómana Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Íslenski boltinn Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Körfubolti VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Fótbolti Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai Enski boltinn Fleiri fréttir Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Real kastaði næstum frá sér sigrinum Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Haukar og Selfoss leika til úrslita Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Áfram í bikarnum eftir Íslendingaslag Coutinho og Neymar uppfylla gamlan draum Fyrrum leikmaður Tottenham til Ajax Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ Raheem Sterling játar sök „Blikarnir geta sleppt sér lausum“ Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Sjáðu mörkin: Bomba í slá og inn beint af æfingasvæðinu Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Coutinho og Neymar sameinaðir á ný „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Leedsarar léku sér að Newcastle Magnaður Malen og Inter kom til baka VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Sjá meira
Kynslóðaskiptin fyrr en reiknað var með "Fókusinn hefur verið á það neikvæða. Einblínt hefur verið á úrslit leikja og þau mistök sem gerð hafa verið,“ segir Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari Íslands. 6. júní 2013 06:00