Rússar hreinsa til í Norður-Íshafinu 26. janúar 2013 07:00 Kafbáturinn Kursk við höfn í Berentshafi, þar sem höfuðstöðvar norðurflota rússneska hersins eru. Þessi kafbátur fórst árið 2000 með 118 manna áhöfn.nordicphotos/AP
Rússar ætla á þessu ári að kanna hvort hægt sé að lyfta kjarnorkukafbátinum K-27 upp af hafsbotni þar sem hann hefur legið síðan 1982. Takist það verður reynt að fjarlægja úr honum geislavirkt úran sem er í kjarnaofni bátsins. Frá þessu er skýrt á fréttasíðu breska útvarpsins BBC. Meira en þrír áratugir eru síðan K-27 sökk austan við eyjuna Novaya Zemlya í Norður-Íshafinu, en þar í hafinu í grennd eru einnig nokkrir staðir sem Rússar notuðu á tímabili til þess að henda kjarnorkuúrgangi. Nokkur vestræn ríki hafa undanfarinn áratug aðstoðað Rússa við að fjarlægja kjarnorkueldsneyti úr kafbátum, sem sökkt hafði verið í Norður-Íshafið við Kólaskaga, sem er nær Skandinavíu. Til þessa hefur hins vegar ekkert verið hreyft við kjarnorkuúrgangi austan við Novaya Zemlya, stórri eyju sem Rússar notuðu auk þess á sínum tíma til að gera tilraunir með kjarnorkusprengingar ofan jarðar. Rússneska orkufyrirtækið Rosneft og bandaríska orkufyrirtækið Exxon Mobil eru að kanna möguleikana á vinnslu olíu og gass úr hafsbotninum í Kara-hafi, austur af Novaya Zemlya. Búast má við því að á næstu árum og áratugum aukist umsvif á þessum slóðum, ekki síst þegar greiðari umferð verður um Norður-Íshafið vegna hlýnunar jarðar og bráðnunar hafíss. BBC hefur eftir Ingar Amundsen, sérfræðingi við norsku geislavarnarstofnunina, að Rússar séu nú loksins farnir að taka alvarlega þann vanda sem kjarnorkuúrgangur í hafinu skapar. Kjarnorkukafbáturinn K-27 var tekinn í notkun árið 1962 en sex árum síðar varð bilun í honum með þeim afleiðingum að geislavirk efni láku úr öðrum kjarnaofni hans. Níu úr áhöfn hans létu lífið. Báturinn var síðan formlega tekinn úr notkun árið 1979 og árið 1982 var honum sökkt niður á 33 metra dýpi skammt út af austurströnd Novaya Zemlya. Fleiri rússneskir kjarnorkukafbátar liggja enn á hafsbotni í Barentshafi og Norður-Atlantshafi. Árið 2001 tókst þó að lyfta rússneska kjarnorkukafbátinum Kursk, sem fórst árið áður í Barentshafi með 118 manna áhöfn. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Sjá meira