Erlent

Neyðarástandi lýst yfir í Colorado

Frá Boulder-sýslu.
Frá Boulder-sýslu. Mynd/AFP
Meira en 2500 manns hefur verið bjargað í Boulder-sýslu í Colorado í Bandaríkjunum en mikil flóð eru á svæðinu. Að minnsta kosti fjórir eru látnir og óttast yfirvöld að talan eigi eftir að hækka. 172 er enn saknað.

Ástandið er verst í Boulder-sýslu en hátt í 30 vegum hefur verið lokað og eru aðrir stórskemmdir eða horfnir að hluta. Gríðarleg úrkoma hefur verið á svæðinu frá því á fimmtudag en þá féll rúmlega 15 sentimetra úrkoma á 19 klukkustundum. Enn meiri rigningu er spáð nú um helgina.



Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hefur lýst yfir neyðarástandi á svæðinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×